Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
520
Fuglar.
og áður á eyjum við Skotlandsstrendur, og sást þar seinast
við St. Kilda árið 1829. Geirfuglinn sótti eigi mjög langt
til norðurs; nyrzti varpstaður hans, sem menn vita um, voru
Geirfuglasker við Reykjanes.1) Ymislegt fieira var skráð
um geirfuglinn en hér hefir verið getið, og er það fiestalt
talið i Landfræðissögu Islands.2)
3. Fiskar.
Yér höfum fyr í þessu riti, i köflunum um sjó og
lofts-lag, getið um sævarhitann við Island og strauma þá, sem
umkringja iandið að sunnan og norðan. Það eru aðallega
tvær straumhreyfingar. sem ráða sævarhita, önnur volg, úr
suðvestri frá heitum höfum, hin köld, úr norðaustri frá
heim-skautshöfum. Sævarfallið stendur i nánu sambandi við vinda
og hita og loftslag alt á Islandi, en eftir þvi verður
jurta-gróðurinn á landinu að haga sér, dýralifið og mannlifið.
Hin beinustu áhrif hefir þó sævarhitinn eðlilega á jurtir og
dfr i sjónum. Vér höfum áður séð hvernig þaragróðurinn
við strendur landsins skiftist i tvær deildir eftir
sævarhit-anum, þannig að sægróðurinn er þroskamestur og
fjölbreytt-astur við suðvesturstrendur landsins, en fáskrúðugur við
norðausturjaðarinn og með heimskautsblæ, vegna þess hve
sjórinn þar er kaldur. Dýralifið i sjónum er alveg háð
hin-um sömu lögum, einkum alt hið lægra dýralif og þá einnig
fiskarnir, sem eru bundnir við lifseðli þeirra smáskepna,
sem þeir eta, og svipuð eru lífsskilyrði sela og hvala. En
lifsfyrirbrigðin i heild sinni raðast niður eftir áhrifum
sól-arinnar, sem drotnar yfir loftslagi hnattarins og gangi vinda
og strauma.
Mikill munur er á dýralifinu á vetrum og sumrum eftir
þvi hverjir straumar hafa yfirhönd. Vér gátum þess áður,
Japetus Steenstrup: Et Bidrag til Geirfuglens Naturhistorie.
(Naturhist. Foren. Vidensk. Meddelelser 1855).
2) Landfræöissaga IV, bls. 211-215.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>