Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Lífsskilyrði sædýra.
521
að meðalhitinn á yfirborði sævar væri i ágústmánuði fyrir
sunnan land um 11°, í marz 3—4°. fyrir vestan og norðan
i sömu mánuðum 8—10° og 1°, en fyrir austan i ágústmán.
6—7° og í marz ekki nema 1 2°—1°. Pá eru hafísar
heim-skautslanda gengnir langt fram, köldu straumarnir hafa
stórum aukist og kaldir norðanvindar hjálpa lika til að
kæla yfirborðið. Petta hefir líka áhrif á saltmegni hafsins,
þvi bræðsluvatn issins fær þvi meiri útbreiðslu á }Tfirborði
sem hafisarnir eru meiri, en þetta er enganveginn
þýðingar-litið fyrir dýralifið i sjónum.
Af hinum mismunandi hitahlutföllum i höfunum
kring-um Island leiðir. að dýralifið i sjónum yfirleitt er sambland
af suðrænum og norrænum tegundum; hér eru takmörk
hins tempraða beltis og hins kalda beltis, svo þar við
myndast sambreyskingur úr báðum ríkjum; meginþorri
hinna staðbundnu tegunda skiftir sér þó niður eftir
al-mennum meðalverðum árshitans og það mundi eiiaust sjást,
ef vel væri rannsakað, að hinum suðlægu tegundum smátt
og smátt mundi fækka, þvi nær sem dregur norðausturhorni
landsins. Hinar staðbundnu tegundir, sem annaðhvort eru
fastar við botninn eða litt hreyfanlegar, eru háðar árlegum
hitabreytingum, surnar þola ekki ofmikinn vetrarkulda,
aðr-ar þrífast ekki i ofmiklum sumarhita, til þess þær dafni vel
verða lifsskilyrðin að vera hentug, hitinn mátulegur og fæðan
nóg á þeim stað sem þær eru. Ef slikar tegundir finnast með
einstaklingafjölda að nokkrum mun á einhverjum ákveðnum
stað, má óhætt draga þá ályktun, að tegundin eigi þar heima.
Oðru máli er að gegna um þær lifandi verur. sem synda í
sjónum og rekast af vindi, bylgjum og straumum langar
leiðir. Allur hinn ótölulegi grúi af smáum lifsmyndunum
eða lífsögnum af jurta- og dýraríki, sem syndir i sjónum,
er einu nafni kallað »rek« eða plankton. Pó mikið finnist
einhversstaðar af ýmsum tegundum reksins, þá er ekki þar
af hægt að álykta, að þær eigi þar heima, þær geta verið
langt að komnar, það sýnir sig aðeins að þær á þeim tima
og á þeim stað finna lifsskilyrði, sem þeim eru hentug. Ef
náttúruskilyrðin breytast, deyja þær rektegundir, sem ekki
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>