- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
535

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Fiskar.

547

mikla útbreiðslu i Atlantshafi, snnnar en ísland, t. d. við
England, Irland og Skotland og ein þorsktegund, sem á
heima i Miðjarðarhaíi (Gadus poutassou), er líka algeng
sunnan við Island. Yið Austurland hefir sjódýralífið
yfir-leitt heimskautsblæ, þó nokkrar tegundir finnist þar innan
um, sem heima eiga i nokkuð heitara sjó. I djúpinu, fyrir
neðan 300 faðma, er hitastigið jafnan fyrir neðan frostdepil.
þar eru eintómir pólfiskar, sem eiga heima i köldu vatni i
heimskautshöfum. Austur af Langanesi veiddi
rannsókna-skipið »Thor« á 766 faðma clýpi tvær tegundir kuldafiska:
Lycodes frigidus og hinn blóðrauða, einkennilega
djúpsævar-fisk Rhodichthys regina, hitastigið var þar -4-0°,95; nokkru

172. mynd. Álabrosma (Lycodes).

sunnar (66°) á 552—479 faðma dýpi með -f- 0°,58 hita,
veidd-ust svartaspraka (Hippoglossus hippoglossoides), kuldaskata
(Raja hyperborea) og tvær tegundir af álabrosmum
(Lyco-des pallidus og L. seminudus). A djúpum sjó er alt dýraiifið
hér einsog við Spitzbergen og önnur heimskautslönd, en
þegar ofar dregur i sjónum, fara smátt og smátt að bætast
við ýmsar tegundir, sem líka geta lifað i nokkuð heitara
vatni; tegundirnar raða sér eftir hitastigunum i sjónum
bæði á flatveginn og þverveginn. Dr. Joh. Schmidt getur
þess til að sýna mismuninn á fiskalifinu eftir dýptinni. að
þeir rétt inn við land i Reyðarfirði fengu broddamús
(Ago-nus cataphractus), sú marhnútstegund á heima við strendur
Evrópu, við England, Frakkland og Danmörku, en í sama
firði fengu þeir á 70 faðma dýpi fisk af sama kyni,
tístrend-ing (Agonus decagonus), en sá fiskur á heima við Grænland
og Spitzbergen og i Hvitahafi. Það er pólstraumurinn, sem

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0547.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free