- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
538

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

538

Fiskai-.

hrogn í sjónum voru meðal annars rannsökuð á línum út
frá Ingólfshöfða og Dyrhólaey. Yið Ingólfshöfða fundust
hrogn alt að 7 milur út frá landi, en við Dyrhólaey ekki
nema tvær mílur; þetta virðist undarlegt, en liggur i því,
að grynningar ganga miklu lengra út frá Ingólfshöfða, en
snardýpi mikið er út af Dyrhólaey niður af
grunnsævis-pallinum, en eggin halda sér aðeins á vissu djpi, i
mis-breiðu belti fram með ströndunum eftir breidd
grunnsævis-pallsins. Pegar rannsökuð var útbreiðsla rekseiðanna1)
fram með ströndinni, kom það i ljós, að þau fylgdu líka
vissu lögmáli. Næst landi eru hhi yngstu rekseiði þeirra
fiska, sem koma úr botnföstum hrognum, sild, loðna,
trönu-sili o. s. frv. Fjær ströndu koma svo rekseiði þeirra fiska.
sem fæðast úr iijótandi hrognum, þorskfiska og annara, og
stærri rekseiði af hinum fyrra flokki, en lengst úti, oft 3’fir
miklu dýpi, eru rekseiði karfanna. Ungviði þorskfiskanna
heldur sig jafnaðarlega nærri ströndu, en karfaseiðin eru
þar fyrir utan í miklum grúa i reginhafi, langt frá landi:
eðlilega rekast ungseiði þorskfiskanna smátt og smátt
all-langt fram með sævarfallinu og sum flækjast út á rúmsjó.

Rannsóknir Dana hafa líka sýnt, að hitinn i sjónum
hefir stórkostlega þýðingu f^^rir útbreiðslu hrogna og
rek-seiða i sjónum. Dr. Joh. Schmidt fann 1903, að
þorsk-hrognin eingöngu var að finna i sjó með 5 stiga hita og
þar yfir og útbreiðsla þeirra i mai og júni takmarkaðist
nákvæmlega af jafnhitalinu 5 stiga, þau voru alstaðar í
sjónum frá Vestrahorni við Lón fram með Suður- og
Yest-urlandi alt norður fyrir Hornbjarg á Hornströndum, en fyrir
utan fyrgreinda sævarhitalinu sást engin ögn þorskhrogna.
Það er þvi sannreynt, að þorskurinn hrygnir aðeins á þessu
svæði við Suðurland og Yesturland, en fyrir norðan og
aust-an sést varla ógotinn hrognfiskur. Ungseiði þorskanna halda
sór á sama svæði i volga vatninu og ekki annarstaðar við

’) Rekseiði kalla eg ungviði fiskanna, nýkomin úr eggi (pelagisk
Yngel), sem ekki^enn geta ráðið hreyíingu sinni. en herast meö
öld-um og straumi.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0550.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free