- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
542

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

542

Fiskai-.

í ósöltu vatni. í ám og stöðuvötnum, eru ekki til nema
5 tegundir fiska á Islandi: lax, urriði, bleikja, álar og
horn-síli. Laxinn (Salmo salar) gengur upp i mjög margar ár
bæði fyrir sunnan og norðan, en miklir hlutar landsins eru
þó laxlausir, t. d. Yestfirðir allir milli Gilsfjarðar og Bitru,
suðurströndin öll fyrir austan Pjórsá og Austfirðir norður
að Héraðsfióa. Mestar veiðiár eru Pjórsá, Ölfusá og Hvítá i
Borgarfirði. Laxinn heldur sig á vetrum i sjó nærri
strönd-um og lifir á smásilum og kröbbum, fer að leita upp i árnar
suðvestan á landinu i aprilmánuði, þegar vei árar, en alment
þó varla fyr en ’í miðjum mai; göngurnar haldast svo
stöð-ugt fram i ágúst. Laxarnir komast i stóránum 11—12 mílur
upp i land, i Þjórsá upp að Búða, i Ölfusá upp að Gullfossi,
i Hvítá upp að Kláffossi, en um Pverá i Pverárhlið flækjast
þeir jafnvel upp á Tvidægru. Laxar hrygna frá þvi i
ágúst-lok fram i nóvember og svo fara þeir aftur að snúa til sævar
og eru flestir farnir fyrir jól. Laxaseiðin vaxa upp i
lækj-um og vötnum saman við urriðasíli og munu eigi fara til
sævar fyr en á öðru sumri, hverfa þá og koma aftur sem
2—3 punda smálaxar.

Urriði (Salmo trutta) lifir i sjó, ám, lækjum og vötnum
undir ýmsum lifsskiljrrðum og er þvi með ýmsum
afbrigð-um og með ýmsri stærð. Sumir eru farfiskar, ganga upp i
ár likt og laxar, sumir eru staðfiskar, bundnir við ár og
vötn árið um kring og komast eigi þaðan. Sjóbirtingar
eru algengastir i suður- og suðvesturhluta landsins, en eru
þó til i öllum landspörtum, þeir ganga í ár frá því í maí
og fram í september, flestir þó i ágústmánuði.
Vatnaurr-iðar eru mjög mismunandi að stærð, oftast 2—4 pund.
stundum 10 pund og i Pingvallavatni hafa veiðst 20—26
punda urriðar. Peir lifa á silungaseiðum, hornsilum og
hrognum og á skordýrum meðan þeir eru ungir. Urriðar
hrygna um sama t.íma og laxar. Lækjasilungar,
smáaf-brigði af urriðum, eru alstaðar algengir, mjög mismunandi
að stærð og útliti; þeir lifa á vatnabobbum, skordýrum,
jurtum og smásílum. Bleikjur eða vatnasilungar (Salmo
alpinus) eru enn þá algengari en urriðarnir, þeir eru bæði

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0554.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free