- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
543

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Sinokkliskar.

543

farfiskar og staðfiskar einsog hinir og eru af þeim mörg

afbrigði, sem hafa ýms nöfn i ýmsum héruðum. Birtingar

eða sjóreyður eru farfiskarnir kallaðir, þeir eru miklu al-

gengari við Norður- og Austurland en urriðarnir, sem halda

sig helzt i hinum volgari sjó við Suðurland. Bleikjurnar

eru minni en urriðarnir, mest 4—5 pund, vanalega 1 — 2

pund; þær lifa i sjó mest af marflóm. Af vatnableikjunum,

sem ekki koma i sjó, eru mörg afbrigði; þær hafa mikla

útbreiðslu um ár og vötn á láglendi og hálendi; stærstir

eru þessir silungar i f’ingvallavatni, alt að 10 pundum;

vanalega eru þeir þó eigi nema 1—3 pund. Vatnableikj-

urnar lifa á vatnabobbum, smákröbbum, mýlirfum og hrogn-

um; hinir stærri silungar lifa stundum á hinum stnáu; sil-

ungar þessir hrygna oftast á haustin (september til nóvember)

á grýttum botni nærri vatnabökkum. Bleikjuafbrigði lítið

vaxtar i Pingvallavatni heitir »murta«, Ve — 1 4 punds á

þyngd og 6—9 þuml. á lengd; önnur bleikjutegund enn

minni, 4—5 þuml., dökk á lit, lifir i hraungjám hjá Þing-

völlum.x)
/

Alar (Anguilla vulgaris) eru algengir á Suðurlandi, i
lækjum og sikjum á undirlendi; á Norður- og Austurlandi,
frá Lónsheiði til Eyjafjarðar, eru þeir mjög sjaldgæfir.
Vest-antil á Norðurlandi og á Vestfjörðum hafa álar sézt hér og
hvar, en eru fremur fágætir. Við Breiðafjörð og á
Snæfells-nesi fara álarnir að verða algengari, en mest mun vera af
þeim á Suðurlandsundirlendi, i hinum mörgu mýrasikjum,
oftast i leir og leðju; álar kvað komast 5—7 mílur frá sjó,
en ekki hærra en 200 fet yfir flæðarmál; bezt þrífast þeir
i volgum laugalækjum eða ám, sem laugavatn rennur i.
Fullorðnir álar (kvennfiskarnir) eru á Islandi vanalega 3/4
—1 alin á lengd, en kvað geta orðið yfir 2 álnir og 8—10
pund á þyngd, en svo stórir álar munu vera mjög fágætir.
Karlfiskurinn er mikið minni og heldur sig vist oftast i sjó
og árósum. Alaungarnir fara að öllum likindum að ganga
upp i islenzka læki snemma á vorin og haldast göngurnar

’) Andvari 1897, bls. 100-101; 1900, bls. 79- 81.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0555.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free