- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
550

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

550

Fiskai-.

og ekki eins rauður, hann er töluvert algengur fyrir
sunn-an land við Grindavik, Yestmannaeyjar og viðar; veiðist á
20—40 faðma dýpi.

Marhnútar (Cottus scorpius) eru mjög algengir við
strend-ur Isiands á grunnum sjó, hafa eigi fundist d}’pra en 16
faðma, geta orðið 12—14 þuml. langir og eru yfirleitt stærri
nyrðra og eystra i kalda sjónum. Marhnútar lifa á
smá-fiskum og kröbbum, fiskhrognum og fiskraski afýmsutægi;
þeir hrygna við Suðurland á vetrum i janúar og febrúar

Th. Bloch.

181. mynd. Artediellus uncinatus.

og eru hrognin fest við þang i fjörunni; fyrir norðan og
austan hrygna þeir töluvert seinna og eru oft ekki útgotnir
fyr en i mai og júni. Af marhnútum hafa Islendingar svo
sem engin not.Grænn marhnútur (Cottus bubalis) er til
við Suðurland; J. Schmidt hefir fundið seiði hans milli
Ingólfshöfða og Látrabjargs. Ymsir aðrir marhnútsfiskar
hafa fundist við Island og eru flestir fáséðir, halda sig i
köldum sjó og á töluverðu dýpi. Gymnacanthus tricuspis
kvað hafa fundist við Island og Cottunculus microps hefir

Sveinn Pálsson getur l>ess, að Yopnfirðingar veiði mikið af
marhnútum í Núpslóni og herði þá einsog Mývatnsreiður.
(Eðlisút-málun manneskjunnar eftir Dr. Martinet, Sv. P. þýddi, Leirárgörðum
1798, bls. 99—100).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0562.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free