Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
552
Fiskai-.
r ___
við suðvesturströnd Islands. Yogmeri (Trachypterus
arcti-cus), þessi fagri og gljáandi, borðalagaði fiskur, getur orðið
6—7 fet á lengd. Yogmerin er djúphafsfiskur, sem alloft
rekur á Islandi, hingað og þangað kringum alt land, en
annars vita menn ekkert um lifnaðarhætti hennar. Af
sömu ætt er sildakonguriun (Regalecus glesne), það er lika
sjaldséður djúphafsfiskur, sem getur orðið mjög stór, 12—18
fet á lengd; fisk þenna rak hjá Gamlahrauni við
Eyrar-bakka 23. sept. 1906 og var sá einstaklingur 12 fet og 4
þuml. á lengd,1) hefir hann annars aldrei sézt á Islandi, en
rekur stundum sunnantil i Noregi og á Bretlandi.
Sjald-gæfur fiskur, sem heitir Notacanthus nasus, rak á
Eyjafjalla-sandi um það leyti sem Gaimards-leiðangurinn var hér á
ferð (1835—36) og var þá teiknaður í ritsafni þeirra, siðan
hefir fiskur þessi ekki sézt, fyr en hann fanst á Eiði i
Yest-mannaeyjum2) 1909.
Skötuselur eða kjaftagelgja (Lophius piscatorius), mjög
einkennilegur og ljótur fiskur, ákafiega kjaftviður með
breið-an og flatan haus og ýmsar angalýjur út úr sér, getur orðið
4—5 fet á lengd, heldur sér á botni i leðju eða innan um
þang og steina og tælir smáfiska til sín með hinum hreyf<*
anlegu öngum. Skötuselurinn er nokkuð algengur kringum
alt land, oftast æði grunt, en hefir þó lika fundist niður að
85 föðmum; liklega er fiskur þessi algengastur fyrir sunnan
og vestan. TLimantolophus Lteinhardti, sjaldgæfur
djúpsævar-fiskur, hefir tvisvar rekið i Vestmannaeyjum og einu sinni
á Eyjafjallasandi.
Hrognkelsi (Cyclopterus lumpus) eru algeng kringum
alt land, en mest mun þó vera af þeim við vestur- og
suð-vesturstrendur landsins. Hrognkelsin eru farfiskar og koma
upp að ströndum á vorin til að hrygna; við Faxaflóa eru
þau sezt að i þaranum i miðjum marzmánuði og fram í júlí
eru þau að koma í flokkum; þau halda sig þá oftast á mjög
grunnu vatni og liggja oft í pollum um fjöruna nærri á þurru
Bj. Sæm., Lögrjetta I, 1906, bls. 199.
2) Skýrsla náttúrufræðisfél. 1911, bls. 35.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>