- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
566

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

566

Fiskai-.

í austangörðum haust og vetur og eins i Grindavik. Af
íiskakyninu Scopelus hafa fundist 3 tegundir við Island, Sc.
maderensis og Sc. caninianus hafa rekið einu sinni i
Vest-mannaeyjum og Sc. glacialis hefir veiðst á 60—80 faðma dýpi
fyrir vestan Vestmannaeyjar; tvær aðrar tegundir (Sc. arcticus
og Sc. elongatus) hafa náðst á miklu dýpi (745—1040 föðm.)
fyrir sunnan og suðvestan Isiand. Cyclothone microdon, sem
lika er djúphafsfiskur, liefir veiðst á 295 faðma dýpi nærri
Islandi. FaraJepis boreaJis hefir nokkrum sinnum náðst i
Faxafióa og P. Kröyeri hefir einu sinni fengist. PJagiodus

188. mynd. Loðna (Mallotus villosus).

ferox hefir rekið i Vestmannaeyjum og i Bolungarvik og
hefir fundist i hákarlsmaga.

r

Sildin (Clupeci harengus) er mjög algeng við Island og
kemur i miklum torfum, en göngur hennar eru mjög
mis-munandi af ýmsum orsökum. Síldin hefir ýms nöfn eftir
stærð og aldri. Hafsildin er fuilvaxin að meðaltali 13—14
þuml. á lengd, hún heldur sig i stórum torfum á rúmsjó,
á útmánuðum er mikið af henni fyrir utan suðvesturhluta
landsins og eta stórþorskar mikið af henni; í mai gengur
hún oft inn i Faxaflóa, en þó mjög óreglulega, á sumrin (i
júli til septeniber) safnast urmull af henni við Norður- og
Austurland, þangað eltir hún rekið, sem fyr var getið, og
fylgir einsog það straumum kringum landið. Par eru á
þeim tima stórkostlegar síldaveiðar; gengur sildin þá oft
inn i firði nyrðra og eystra, en mjög óreglulega, um jól er

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0578.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free