Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Bæjaskipun
7
og langt er til jökla, þess vegna eru hæstu bygðirnar á
hálendishallanum norður af Vatnajökli.
Mývatnssveit er hin hæsta samfeld bygð á landinu, sem
hefir vanaleg einkenni sveita, tún og engjar, og beitarlönd
og afrétti í kring. Sveitin er lítil að ummáli, liggur á
280—300 metra hæð yfir sjó, fiestir bæirnir eru í nánd við
vatnið og liafa skjól af fjallahring; veiðiföng mikil eru i
vatninu, silungur og eggver; jarðhiti er þar töluverður; 3
eða 4 bæir eru all-langt frá vatninu i góðum heiða- og
haglendum. Bygðirnar í Fjallasveit og á Jökuldalsheiði
liggja ennþá hærra (400—550 m. yfir sjó), það eru
heiða-og fjallalönd, þar sem fólkið þvinær eingöngu lifir á
sauð-fjárrækt og hefir bygðin þar verið mjög breytileg, bæir
bygst og lagst í eyði á víxl. Túnrækt er i þessum
bygðar-lögum mjög lítil og örfáir nautgripir1); mýrlendi eru þar
óviða til, roksandar taka yfir stór svæði i Fjallasveit, en á
Jökuldalsheiði eru vanaleg heiðalönd með melum, urðum
og holtahryggjum. Par sem roksandurinn hefir yfirhönd.
eru viða melþúfur, en sum sandsvæðin eru vaxin loðviði.
grávíði og bjúgstör. Par eru víða ágæt beitarlönd fyrir
sauðfó og víðátta mikil, en örðugra er að útvega heyforða
til vetrar, menn notast helzt við laufslægjur og melgresi og
verða því mikið að ætla upp á útibeit. Fjallasveit liggur
á 400—470 m. hæð (Víðirhóll á Fjöllum 415 m., Grimsstaðir
432 m., Möðrudalur 469 m.), en Jökuldalsheiði liggur eun
þá hærra (Viðirhóll 533 m., Rangalón 530 m.), eru smábýlin
þar innan um vötn á heiðinni og hafa þau liklega flest
myndast úr fornum seljum.
I hinum lengstu dölum austanlands nær bygðin allhátt
yfir sjó, á Efra-Jökuldal upp að 3—400 metrum; mjög
óviða hafa þó bæjahæðir verið mældar eystra, en það er
vist, að hvergi liggja bæir hærra en á Jökuldal,
Hákonar-staðir eru t. d. 310 m. yfir sjó. Fljótsdalur hefir skorist
dýpra niður (Kleif 126 m.), en efstu bæir í Vopnafirði
Arið 1914 voru í Fjallasveit á 8 býlum 18 nautgripir (12 kýr),
en 1862 sauðfjár. (Búnaðarskýrslur 1914).
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>