Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
26
t
Abúö landsins
sýslum og þó helzt í Öræfum: þar eru 8 jarðir, þegar með
er talið Tvísker, kot við Breiðamerkursand, og á þeim 26
ábúendur (1908). sem llestir eiga jarðarparta sina. I
Suður-sveit eru 10 jarðir og 23 ábúendur, 6 i Borgarhöfn einni. A
Hnappavöllum i Oræfum og Hofi eru 7 ábúendur á hverri
jörð og á Svinafelli 5. Pó Hnappavellir séu eigi metnir
nema tæp 20 hdr., þá voru þar þó 1894 á 7 búum 54 menn
í heimili; einn ábúandinn sem bjó á 180 álnum, heyjaði árlega
r
200 liesta.1) A jörðum þessum hefir hver ábúandi sinn
ákveðna hluta af túninu. en engjarnar eru sameign, þó
þannig að liver ábúandi hefir sinn ákveðna teig af
engj-unum eitt ár i senn. og fær þá aftur sama teiginn til afnota
eftir jafnmörg ár — frá því er hann hafði hann siðast —
einsog ábúendur jarðarinnar eru margir.2) Svipað
fyrir-komulag er enn víða i þorpum vmsra erlendra þjóða. I
Öræfum er fremur góð afkoma, en viða annarstaðar i
Skaftafellssýslu. þar sem margbvli er. eru bændur fátækir;
þeir geta ekki fjölgað skepnum sínum vegna þröngbýlisins,
þó fjölskyldan vaxi, og sumir leiðast til að hafa fleiri
skepnur en jarðarparturinn getur borið, svo meðferðin
verður iil og afraksturinn litill.3) Margir aðrir annmarkar
fylgja margbýlum, þvi sjaldan ber það við, að ábúendur
séu samþykkir um alt, enda væri það undur, þvi mjög
hafa Islendingar jafnan þótt einþykkir; menn geta ekki
komið sér saman um jarðabætur, áveitur, framræsingar og
fleira, sem þörf er á, og til bóta mætti verða, lendir svo
alt i deyfð og framkvæmdarleysi. Pað hefir lengi þótt
brenna við, að margbýium fylgdi fátækt og vesalmenska,
þó er það ekki algild regla. sem betur fer. Hermann
Jónasson getur um jörð i Barðastrandarsýslu með 4 býlum,
einn ábúandinn. sem bjó á 6 hundruðum, hafði tún sitt i 8
smáblettum á víð og dreif um alt aðaltúnið. A annari
jörðu stóðu tveir bæir með dálitlu millibili á sama túni;
’) Ferðabók 1\ Th. III. bls. 242.
2) Búnaðarrit XXII, 1908, bls. 199.
3) Sæmundur Eyjólfsson í Skýrslu Búnaðarfélagsins 1884—86.
Erík 1887, bls 28 -29.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>