- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
46

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

46

J arðabygging

raenn laus kúgildi á leigustööum viðsvegar um sveitir og

þeir hiuir sömu áttu ef til vill engar jarðir, aðeins lausafé;

kirkjur, klaustur og biskupsstólar komu frá öndverðu fé

sínu á rentu á þenna hátt; árið 1220 átti Pingeyraklaustur

t d. 190 kúgildi á leigustöðum.1) 1 Sturlungu er getið um

Pórir prest Porsteinsson i Deildartungu: »hann var auð-

maður mikill; hann átti hundrað kúgilda á leigustöðum ok

tiu lendur«. Siðar er þess getið, er hann fór af landi brott,

/

að hann þá hafi átt fjögur hundruð hundraða.2) Arið 1504
átti Guðni Jónsson sýslumaður, sem var fjárgæzlumaður
mikill, á fjórða hundrað kúgilda á leigustöðum að eins i
Þverárþingi vestan Hvitár, og voru sum kúgildin leigð
prestum, og hjá sumum einstökum mönnum stóðu 12—16
kúgildi.3) Gisli Sveinsson sýslumaður í Arness)%lu hafði
árið 1564 svo mikinn ágóða af sýslunni, að hann bygði 40
málnytukúgildi um vorið4) Það var stórfé sem þannig
var i útlánum um land alt, einkum á 15. öld, er
auðmenn-irnir miklu þurftu að gera fé sitt arðberandi.

Eins og fyrr var getið, er leiga eftir kúgildi samkvæmt
Jónsbók 2 fjórðungar smjörs og eru þeir þar metnir á 12
álnir. Réttarbót Eiriks konungs Magnússonar 1294 bætir
við: »standa skal lögleiga eftir bók, en 6 skynsamir menn
meti, hvárt sá, er leigði, hefur til fóðr eða smjör, ok ef
eigi er til, gjaldi annan mat jafnvirðan, ef hann þarf eigi
úti at kaupa, ella leysi 12 álnum vaðmáls« 5) A næstu öld
hefir smjörverðið hækkað, og síðan á 14. öld hafa 2
fjórð-ungar af smjöri verið reiknaðir sama sem 20 álnir og
eftir-gjald kúgilda verið 20 álnir i öðrum skileyrir, þegar ekki
var borgað í smjöri. Petta var hagur mikill fyrir
kúgilda-eigendur, sem þannig fengu meiri vexti af fé sínu (162/3°/o)
og hefur þetta siðan haldist átölulaust. þó lögbók ákveði
aðeins 12 álna leigu. A 15. öld virðast klaustrin hafa leigt

J) Dipl. isl. I, bls. 398 -400.

s) Sturlunga I, bls. 142, 143.

3) Dipl. isl. VII, bls. 742-745.

4) Saín til sögu íslands I, bls. 114.

5) Jónsbók O. H. bls. 283.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0064.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free