- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
55

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Kúgildi

55

1884, 15. gr. er fyrirskipað að leiguliði ábyrgist
innstæðu-kúgildi jarðar sinnar, að ávalt séu til og leigufær, og skili
þeirn, er hann fer frá eða deyr, einsog öðru. er jörðunni
fylgir, með fullu álagi. Nú er það orðin föst landsvenja
viðast um land, að borgað sé eftir hver 5 jarðarhundruð
með einu kúgildi. 50 álnir i landskuld og leigur og eru þá
eftir kúgildið 20 álnir, 2 fjórðungar smjörs, eða vætt fiska
á sævarjörðum og borgist kúgildaleigur á hverju liausti
fvrir eða um Mikkaelsmessu. í*að er einuig áskilið i hverju
bvggingarbréfi, að landsetar: »greiði alla þá skatta og
skyldur, sem á jörðunni hvila eftir lögum þeim. sem nú
gilda. eða siðar kunna sett að verða. og halda upp öllum
lögskilum af henni landsdrotni kostnaðarlaust að öllu«.
Pessu var engan veginn svo varið til forna, jarðeigendur
urðu sjálfir að svara tíundum og öðrum skyldum af
eignar-jörðum sinum, en smátt og smátt var þessu komið }7fir á
leiguliða. Þessi venja er þegar komin á 1509, Björn
Guðna-son byggir jarðir með þeim skilyrðum, að leiguliðar borgi
tíundir og svari öllum lögskilum fyrir jarðirnar,1) og hefir
venja þessi verið orðin algeng i byrjun 17. aldar. I
til-skipun 21. april 1619 er þess getið, að það sé venja á
ís-landi, að landeigandi borgi tiund. en í alþingissamþykt 30.
júni s. á er sagt. að þetta »hefði óréttilega verið fram
borið« við stjórnina og »leizt lögréttumönnum öllum utan
vébanda og innan ásamt lögmönnum. með
umboðsmannin-um Andrési Hannessvni, að svo standi héðan af sem hingað
til, og eftir gömlum siðvana. að tiund sé rétt heimt af þeim,
sem á jörðu byr«. 2) Petta hefir síðan verið skoðað sem
samningsmál milli landeiganda og leiguliða og er það svo
orðið vani, að leiguliði borgi gjöldin af jörðunum.
Kon-ungslanisetar i Gullbringusýslu og Mosfellssveit voru með
konungsúrskurði 13. júní 1787 undanþáðir tiundagreiðslu
i þágu kvaða þeirra, sem þeir áttu að inna af hendi.3)

’i Dipl. isl. VIII, bls. 268-269.

Lovsamling for Island I, bls. 181, 184.

3) Lovs. f. Island V, bls. 474.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0073.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free