- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
65

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Jaröaverð

65

urðu að borga eftir þau hátt eftirgjald. Peir, sem voru
góðsamir og meinlausir, töpuðu stundum á umboðunum, en
illmenni, sem þjökuðu alþýðu, gátu stundum safnað of fjár
á stuttum tima. Þetta mjög óheppilega stjórnarfyrirkomulag
tiðkaðist um margar aldir viðast í Norðurálfu. alt fram
undir lok 18. aldar. A Islandi voru það embættismennirnir
og umboðsmennirnir, bæði danskir og islenzkir, sem héldu
fastast í kvaðirnar, af því þeir höfðu mikinn liagnað af

r

þeim. En eftir að x\rni Magnússon og Páll Vídalín í
byrjun 18. aldar djai*flega höfðu mótmælt þessum álögum
á leiguliða og sýnt fram á. að þær voru til niðurdreps
fvrir velmegun alþýðunnar, fór stjórnin smátt og smátt að
taka í taumana, svo kröfurnar linuðust. unz kvaðirnar voru
afteknar víðast seint á 18. öld. Kvaðir þær, sem taldar
hafa verið. lágu allþungt á lanclsetum konungs nærri
Bessa-stöðum, og yfirleitt voru kvaðirnar mjög erfiðar fyrir
leigu-liða i sævarsveitum nærri Faxaflóa; en meginþorri
sveita-bænda var alveg laus við allar kvaðir, og hvergi á landinu
jafnaðist ánauð bænda við þá kúgun, sem tíðkaðist i
Dan-mörku og öðrum löndum á fyrri öldum.

4. Jarðaverð.

Síðan á 16. öld hefir verð peninga úr gulli og silfri
sifelt verið fallandi gagnvart afurðum náttúrunnar;með
öðrum orðum: nauðsynjavörur, sem þurfa til lífsins
viður-halds, hafa stöðugt orðið dýrari og dýrari. Eftir þvi sem
meira fékst af dýrum málmum, eftir því urðu þeir ódýrari,
aukin framleiðsla fram yfir beina þörf og nauðsyn gerir
hverja vöru verðminni. Af þessu verðfalli peninga og
verð-aukning landsnytja hefir eðlilega i flestum löndum leitt
stöðugt vaxandi verðmæti jarðanna, því þær eru
grund-völlur allrar framleiðslu landbúnaðar-afurða. Island virðist

William Scharling: Pengenes synkende Værdi. Köbenhavn
1869. 442 bls. 8°. Sbr. Indriöi Einarsson: Peningar (Tímarit Búkmf.
XI, 1890. bls. 113-143).

5

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0083.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free