- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
94

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

112

112 ííotkun grasleudis og haga

hestar af dagsláttu að meðaltali. Yér setjum hér nokkur
dæmi um afrakstur túna fyrr og síðar.

A 18. öld voru tún á Islandi alment í lítilli rækt, þó

telur Björn Halldórsson, að hálfur annar eyrisvöllur (dag-

slátta) með góðri rækt gefi af sér kýrfóður. en kyrfóður

reiknar hann 26 hesta, hvern á 3 vættir, eða 240 pund;

en nú er töðuhestur vanalega talinn 2 vættir (160 pd.) og

verður kýrfóðrið þá einum hesti minna en nú er vanalega

talið og 26 hestar af vanalegu bandi af dagsláttu. Það er

þó mjög ólíklegt að mörg tún hafi verið i slikri rækt á

þeirri öld. nema þá hjá síra Birni sjálfum.1) Stefán Pórarinsson

amtmaður segir (1796), að ýmsar jarðir á Norðurlandi gefi

af sér 15 —16 hesta af dagsláttu í góðum árum og hefir

það þá verið fremur óalgengt.2) Olafur Stephensen stift-

amtmaður getur þess, að á Geitaskarði i Langadal hafi

fengist 22 dragbandshestar góðrar töðu af dagsláttu með

sauðataðsáburði3), en Magnús Ketilsson sýslumaður segir, að

ekkert tún í Dalasýslu gefi af sér 12 kapla með 10 fjórð-

unga böggum af dagsláttu til jafnaðar, segist þó i Búðar-

dal hafa getað ræktað nokkrar dagsláttur svo vel, að af

þeim fengust 20 hestar, en aðeins í bezta ári hafi til jafn-

aðar fengist 12 hestar af dagsláttu af öllu túninu.4)
/ •

Einar Asmundsson í Nesi segir: »Margföld reynsla
sýnir það, að hér á landi þarf ekki nema jarðveg í
meðal-lagi og meðal-árferði til þess að ein dagslátta i túni, sem
fær þolanlega ræktun, gefi af sér nægilegt fóður handa
einni kú um fimta hlut.a ársins, eða af 5 dagsláttum fáist
fóður handa kúnni, ef hún væri alin inni alt árið«.5) Nú
mun alment kýrfóður viðast talið 40 hestar (eða um 50

>) Atli. Hrappsey 1783, bls. 78-

*) Gömlu Félagsritin XIV, bls. 231.

s) s. st. V, bls. 97.

4) s. st. VII, bls. 96. í Nýjum Félagsritum (1859, XIX. bls. 100)
er sagt að ekki geti kallast góð rækt í túni fyrr en 20 hestar iáist af
dagsláttu.

5) Einar Asmundsson í Búnaðarriti II, 1888 bls. 32. Sbr. Uro
framfarir Islands bls. 17,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0112.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free