- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
192

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

192

Afréttir

upsfcungur og Svörtutungur syðst. Yestan við Blöndu er
Kúluheiði, þá kemur Dalskvislaland, Grímstungnaheiði,
Víði-dalstunguheiðiog Tvidægra. Afréttir Húnvetninga og

r

Sunnlendinga ná saman við jökla, og Húnvetningar og Ar-

nesingar rétta i fyrstu göngum við Seyðisá og i Gránunesi.

t

I suðursýslum er viðátta afréttanna mjög mismunandi.

t

I Austur-Skaftafellssýslum þrengja jöklar mjög að
bygðun-um, svo þar er lítið landrými. Upp af Lóni og Nesjum eru
þó töluverð beitarlönd í hinum mörgu dölum, sem skerast
inn i hálendið, sérstaklega þ\Tkja sumar jarðir i Lóni
hent-ugar til sauðfjárræktar. I miðsveitum sýslunnar er viða
mjög þröngt um sauðfjárhaga, og verða sumir bændur að
útvega sér afrétt hjá öðrum, en hreppsnefndir hafa gát á
því, að heimahögum sé ekki iþyngt um of á sumrum.2)
I Öræfum og Fljótshverfi eru beitarlöndin stærri. þó
víðátt-an sé eigi mikil. Sumstaðar verður að reka fé yfir jökla á
afrétt, t. d. á Breiðamerkurfjall, sem er umkringt af
jökl-um á alla vegu, og sjálft gengur það stundum á jökla,
kindur hafa jafnvel fundist uppi i Esjufjöllum, sem liggja
hátt uppi i Vatuajökli. I Vestur-Skaftafellssýslu er viða hið
mesta landrými hið efra, stórir og grösugir afréttir, einkum
upp af Síðu og Skaftártungu, aftur eiga hinar neðri sveitir
örðugra með upprekstur. Landbrotsafréttur liggur fjarri
bygðinni upp með Skaftá vestan við Siðumannaafrétt, á
óbrunnum eyjum innan um Skaftárhraunið mikla, og hafa
Landbrytingar orðið að ryðja stigi fyrir fénað sinn yfir
hraunklungrin sumstaðar.8) Alftaversmenn eiga afrétt
vest-an við Hólmsá, norður með Mýrdalsjökli upp fyrir
Ein-h37rningsfjöll, og eru þar allgóðir hagar sumstaðar, þó
sandar og hraun séu innan um. Upp af Skaftárfcuugu eru
miklar heiðar með góðri sauðbeit og þar upp af mjög
við-áttumikil öræfi með hagasnöpum hér og hvar vestan við

x) Bróf um fjárrekstur á Víðidalstunguheiði 14. maí 1501 prentað
í Dipl. isl. VII, bls. 558-560.

2) Stjórnartiðindi B, 1891, bls. 142.

3) Ferðabók í\ Th. III, bls. 151.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0210.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free