- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
197

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Fjallskil

197

afréttum og eugiu takmörk af náttúrunni, gengur fjallafé
ýmsra sveita mjög samau.

Fjallskil. Sveitarstjórnarlögin 4. mai 1872 ákveða i 39.
gr., að sýslunefndir semji reglugjörðir um notkun afrétta,
fjallskil og fjárheimtur. Hreppsnefndir hafa að öðru leyti
alla stjórn og framkvæmd á fjallskilamálum. Reglugjörðir
sýslunefnda eru samkvæmt lögum 22. marz 1890 (sbr. lög
24. nóvbr. 1903) staðfestar og löggiltar af amtsráðum.
Sýslunefndir og hreppsnefndir hafa verið óþreytandi í að
semja og breyta reglugjörðum þessum, í
Stjórnartiðindun-um eru prentaðar yfir 60 fjallskilareglugjörðir. Það er því
töluverður mismunur á ákvörðunum um fjallskil i ýmsum
héruðum eftir venjum og landsháttum.

r

A afrétt reka menn geldfé sitt og líka vanalega
frá-færulömb, en sumstaðar eru ær látnar ganga með dilkum i
heimahögum. Vanalega er ákveðið, að alt sauðfó skuli reka
nema kviær, sem nytkaðar eru. Graðneyti eldri en
ársgöm-ul eru menn viðast skyldir að reka á fjöll. í*á reka menn
einnig stóðhross á heiðar og geldneyti, tamin hross má
eigi reka á afrétti nema hreppsuefnd leyfi, og háar sektir
eru sumstaðar lagðar við, ef þangað eru reknar mannýgar
nautkindur,1) slíkir nautgripir eru oft settir i afskekta
gljúfradali eða vikur, þar sem aðrar skepnur ekki komast
að, og eru þá garðar hlaðnir fyrir þau einstigi, er þangað
liggja. Stóðhross eru viða rekin á afrétt svo snemma á
vor-in sem fært þykir veðráttu vegna og færðar, og sumstaðar
er stranglega bannað að hafa tryppi eða ótamin hross i
heimahögum að sumri til. Alt geldfé er rekið, þegar það
er komið úr ull, og sumstaðar eru verðir settir til þess að
verja, að fé manna sleppi i ullu á afréttu.2) I sumum
víð-lendum sýslum, t. d. í Múlasýslum, er ákveðið, að
hrepps-nefndir megi skipa eina eða fleiri löggöngur hvert vor. er
safna þarf geldfé til rýingar.3) Viða er fyrirskipað, að

Stjórnartíðindi B, 1892, bls. 141.

*) Stjórnartíðindi B. 1892, bls. 126; 1898, bls. 122: 1903, bls. 166.
s) Stjórnartíðindi B, 1892, bls. 201; 1893, bls. 168; 1902, bls. 151.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0215.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free