- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
198

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

198

Fjallskil

hreppsnefndir sjái um að bændur smali heimalönd sin í
6.—8. viku sumars,1) og eru þá hafðar vorréttir, þegar bezt
þykir henta. Almenningur er skyldur að hlýða fyrirmælum
hreppsnefndar með smölun til rúningar og fráfærna og til
hreinsunar heimalanda um leið og fyrstu og önnur fjallskil
fara fram.2)

Um fráfærulömb eru ýmsar ákvarðanir; sumstaðar er
ákveðið að þau skuli setin þrjá sólarhringa héima, áður en
þeim er slept á fjall, i öðrum sýslum er lagt fyrir, að þau
skuli setin þrjá sólarhringa á fjalli, þar sem þau eru eftir
skilin, sumir láta nægja tvo sólarhringa heima, aðrir einn
á fjalli. I Borgarfjarðarsýslu er fyrirskipað: >fráfæring
all-an, er á fjall er rekinn, skal sitja i 3 sólarhringa, þar sem
hann er eftir skilinn. Pó má nokkuð af þessum tima sitja
slikan fráfæring heima, með þvi skilyrði. að allur
gæzlu-timi, bæði á fjalli og heima, sé 4 sólarhringar. Só
fráfær-ingurinn rekinn i heimaland, skal sitja hann að minsta

kosti i 6 sólarhringa, þar sem hann er eftir skilinn«.3) I

/ »

Arnessýslu er fyrirskipað: »áður fráfærulömb eru rekin til
fjalls, skal láta þau hlaupa um stekk eigi skemur en 12
klukkustundir«.4j

Svo er víða ákveðið, að alt fullorðið geldfé skuli á
af-rétt komið. þá er 8 vikur eru af sumri. nema ótið og
gróð-urleysi banni, en lömb og dilkær viku eftir fráfærur. A
stöku stað er eigi rekið á afrétt fyrr en um Jónsmessuleyti,
i 10. eða 11. viku sumars.5) í héruðum þar sem smáir
af-rétfcir eru, er viða ákveðið, einsog gjörfc var í fornum
lög-um, að reka skuli i miðjan afréfct, en þar sem mjög stórir
afréttir eru. er það eigi framkvæmanlegt, en kindurnar
leita þá smátt og smátt sjálfar lengra og lengra inn i
landið og fylgja þá vanalega ám og lækjum og votlendum

]) Stjórnartíðindi B, 1894, bls. 84.

2) Stjórnartíðindi B, 1913, bls. 128.

3) Stjórnartíðindi B, 1896, bls. 83.

4) Stjórnartíðindi B, 1902, bls. 168.

B) Stjórnartíðindi B, 1892, bls. 141; 1914, bls. 141, 318.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0216.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free