- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
221

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Nautpeningur

221

að hann hefði kostað sig jafnt og hinir báðir, og var ann-

ar þó niu vetra; hefir naut þetta líklega verið striðalið.

Síðan dró hann gullhring á horn uxanum og kvað honum

fylgja skyldu tiu hundruð vaðmála.1) Brandur ábóti gaf

Porgilsi skarða uxa 5 vetra og Skeggi bóndi i Viðvik gaf

honum uxa 9 vetra gamlan.2) Fornmenn notuðu sem kunn-

ugt er nautshorn sem drykkjarílát i veizlum, voru þau oft

fagurlega fægð og búin dýrum málmum. stundum útskorin

t

með rósum og myndum. Eggert Olafsson hefir heyrt, að

fornmenn hafi aukið vöxt nautshornanna með þvi að

smyrja rót þeirra með nokkurskonar feiti, og svo vanið

þau einsog þeir vildu með þvi að binda þau saman eða

glenna þau út. Eggert segir, að enn sóu til nokkur búin

horn í drekalikingu með pöddu- eða fuglafótum undir og

fugls- eða drekahöfði á loki.8) I Sturlungu er getið um

nautahlöðu, uxarótt4) o. fl., er sýnir, að geldneytunum hefir

t

verið haldið fyrir sig. Ur þvi nautin voru svo mörg og

þau oft svo hundruðum skifti voru rekin á afrótti, varð að

auðkenna þau. enda munu menn til forna liafa markað kýr

t

og naut einsog sauðfónað. I Jónsbók er fyrirskipað, að
»menn skuli einkenna búfó sitt alt, nema hross, og hafa
einkent er átta vikur eru af sumri alt það, er hann þá má
á henda. Eitt mark skal hann hafa á öllu fó sinu5) Pað
sóst á fornbréfum, að kýr voru markaðar á eyrum einsog
sauðfó.8)

Einsog vór fyrr höfum sóð. lítur út fyrir, að það hafi
verið búlag íslenzkra bænda. að ætla hverju hjúi eina kú
eða öllu fremur kú fyrir hvern heimilismann. Sá var ekki
talinn með mönnum, sem ekki átti kú eða málnytukúgildi
fyrir hvert skuldahjón, við það var þingfararkaup bundið

1) Sturlunga I, bls. 155.

2) Sturlunga III, bls. 250; IV, bls. 74.

s) Eggert Olafsson’s Kejse bls. 52.

4) Mynd af förnri nautarétt við Reynistað er í bók D. Bruun’s
Foi-tidsminder og Nutidshjem paa Island, Kbhavn 1897, bls 71.

5) Jónsbók (Ó. H.) bls. 177.

6) Dipl. isl. V, bls. 257; VI, bls. 571.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0239.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free