- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
247

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Fjós

247

um mikið notaður i skjáglugga, en þeir lögðust viðast nið-

t

ur á fyrri hluta 19. aldar. Ur broddmjólk eftir burð eru
viða gerðar ábristir.

Fjós.. Hirðing á kúm og öllum nautpeningi er eflaust
orðin miklu betri en áður. þó ábótavant muni enn vera
sumstaðar. Sumarhirðing kúa mun óviða vera margbrotin,
drengur rekur beljurnar úr haga og i, og svo eru þær
látn-ar eiga sig; mjög víða voru þær til skamms tíma látnar
liggja úti á sumrum,1) en nú mun vera orðið tiðast að hafa
þær inni. Fjósin hafa víðast verið mjög lóleg, þó þau séu
nú farin töluvert að batna sumstaðar á seinni árum.
Is-lenzk fjós hafa að verðleikum verið illa ræmd hjá
rithöf-undum, sem á þau hafa minnst. Jón Sigurðsson forseti
segir 1861 : »Einn hinn mesti galli á kúaræktinni lijá oss
er tilhögunin á fjósunum. Pau eru viða bæði dimm, lág,
óhreinleg og vatnslaus. Ef úr þvi væri bætt, mundi fljótt
sjá góðan mun á kúaræktinni.«2) forkell Bjarnason segir
um fjósin i Skagafirði um miðja 19. öld, að þau haii verið
lág, loftlítil og dimm eða stundum með skjágluggum, »en
sá kostur var við þau á mörgum stöðum, að úr þeim voru
bygðir ranghalar út i vatnsbólið, sem kýrnar gengu eftir
til vatns og voru það kallaðar innibrynningar og af þeirri
ástæðu voru t’jósin helzt bygð við læki, þar sem svo
liag-aði til, og lækurinn látinn renna gegnum ytri enda
rang-halans. A stöku stöðum voru hlöður bygðar við fjósið og
innangengt úr fjósinu inn i hlöðuna, en jafnan voru
hlöð-urnar með torfþaki«.3) Viðast um land voru á 19. öld
hey-garðar eða heytóptir við fjós, og í sumum bygðarlögum t.
d. á Vestfjörðum voru smáhlöður við fjós algengar, eius og
var i fornöld,4) og eru það enn, en innibrynningar, sem hér
er lýst, munu hafa verið fátiðar i flestum bygðarlögum.

’) í fjóðólfi IV. 1852 bls. 341 segir svo: »Fyrir 50 árurn þótti
ókvæði að hýsa kýr á nóttunni frá jónsmessu til höfuðdags, nú láta
allir þær inni liggja«.

2) J. S. Lítil Varningsbók. Kmhöfn 1861, bls. 25.

3) Tímarit Bókmf. XIII, 1892, bls. 179.

Sturlunga I, bls. 272; II, bls. 69, 332.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0265.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free