- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
259

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Mjólkurhæð kúa

259

t

eldi nautpeningsins, er jafnan fer i vöxt«. Eggert Olafsson
segir. að góðar kýr á Suðurlandi mjólki eftir burð iOpotta
i mál og á Norður- og Yesturlandi meira, i
Borgarfjarðar-sýslu segir hann. kýr mjólki jafnaðarlega 12 potta á
sólar-hring og hinar beztu alt að 20 potta, en i Kjósar- og
Gull-bringusýslu mjólki almennar kýr eigi nema 2 potta i mál

r

og sjaldan meira en 4, þó þær sóu vel fóðraðar.1) Olafur
Stephensen stiptamtmaður telur meðalkú á öllu landinu
mjólka 1200 potta, og sú bezta af 50 kúm, sem hann átti,
mjólkaði 1700 potta, en þá var nú líka afarvond tið með
öskufalli 1783. svo sumarnytin varð óeðlilega lítil.®) Magnús
Ketilsson álítur islenzkar kýr alment betri, segir að i
ung-dæmi sínu á Tjörnesi hafi þar ekki verið taldar neinar
»gæðakýr, þó þær kæmust í 10—12 merkur i mál«. Góðar
kýr voru þar kallaðar 15 og 10 marka kýr, og ein kýr var
þar, sem mjólkaði 21 mörk í mál, þá hún var fullgrædd
eftir burð. Magnús Ketilsson kemst að þeirri niðurstöðu,
að meðalársnyt kúa muni vera svipuð og Atli greinir,
rúmir 2000 pottar á ári.3) Meðaltalið af áætlunum hinna
helztu búmanna á 18. öld verður 1005 pottar á ári, svo
það mun ekki fjarri sanni, að meðalkýrnytin á þeirri öld
liafi verið um 1600 pottar, svipað eins og Skúli Magnússon
ætlar.

Um mjólkurhæð kúnna á 19. öld eru til allmargar
skýrslur, sem gefa allgóða bendingu, þó þær séu eigi eins
nákvæmar og fullkomnar eins og skýrslur
nautgripafélag-anna á 20. ölcl. Einstöku menn höfðu um aldamótin
all-stór kúabú, Magnús Stephensen hafði 1810 25 kýr, 300 fjár
og 20 báta á Innra-Hólmi, Stefán amtmaður bróðir hans á
Hvannevri 50 kýr og 2—300 fjár. Magnús fékk sór síðar,
eins og fyr var getið, sjálenzkt kúakyn og átti góðar
mjólkurkýr, sem komust i 18—20 merkur. Magnús
Stephen-sen segir 1808 afarmikinn mismun á kúnum eftir þvi sem
með þær er farið. Samkvæmt reynslu hans mjólkar góð

’) Ferðabók E. Ól. bls. 15, 53. 156.

2) Gl. Félagsrit VI, bls. 73.

3) Gl. Félagsrit VII, bls. 87-88.

17*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0277.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free