- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
264

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

264

Xautpeiiiiigsrækt

innlendu kvni og ágætlega fóðraðar, þá mjólkaði sú bezta

2400 potta, en sú lakasta 1170 potta, en hinar fiestar á

milli 1300 og 1700.1) Xautgriparækt almúgans i Noregi

hefir lengi verið á lágu stigi og er alment lakari en á ís-

landi. fó eru eðlilega þar i landi stöku góð kúabú og

ýmsar tilraunir gerðar til kynbóta og búnaðarframfara. I

norðurhluta Noregs, sem liggur undir sama eða svipuðu

himinbelti og ísland, var eftir embættissk):rslum amtmanna

enn þá eftir miðja 19. öld nautpeningsræktin mjög bág-

t

borin, svipuð þvi sem var á Islandi á 18. öld hjá hinum
sauðsvartasta almúga. í skýrslu amtmannsins á
Háloga-landi um árin 1856—60 stendur: »Nautaræktin, sem og
fénaðarræktin öll, hefir enn sem fyrr nálega alla galla til
að bera. Pótt gras taki að sölna þegar i ágústmánuði, er
kúnum haldið úti og það oftlega fram i nóvember, meðan
nokkur snjólaus blettur er til á jörðunni. Svo er sett á
vetur miklu fleira en fóður er til. Fer þá oftlega svo, að
fóðurskortur verður þegar i febrúar og er þá farið að safna
og gefa kúm þang og þara, fiskbein, hris og barkskaf af
birkitrjám, til þess að halda i þeim lifinu. Þetta veitir þó
örðugt, þvi verkfærir karlmenn eru þá við sjó, svo
kvenn-menn, unglingar og örvasa karlar verða að safna þessu
sam-an. Séu nú kýrnar á vorin risfærar og gangfærar, þykir
mönnum alt með feldu og kýrnar eru látnar út á vorin,
þegar er snjó leysir og tekur að slá i jörð. Siðan segir
amtmaður, að búhnykkur bænda sé sá að hafa sem flestar
kýr á sumrum, þvi sumarhagar séu viðast góðir, en upp á
vetrargagnið hugsi bændur ekki. Sumargagnið af kúnni
segir amtmaður só að meðaltali um 36 pd. af smjöri, 36 pd.
af osti og um tvær tunnur sýru. Um vetrargagn sé
naum-ast að tala, segir hann, með þvi og að kýrnar beri
jafnað-arlega seint á veturna, seinast i febrúar eða i marz.
Amt-maður segir ennfremur, að meðgjöf með kú sé þetta 12
til 16 krónur, frá októberlokum til byrjunar á maí; en
meðgjöf með ám og lömbum sé 2 til 4 krónur«. Svipað

r

var ástandið i mörgum öðrum bygðarlögum i Noregi. A
’) Ný Félagsrit XI, 1851, bls. 89—90.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0282.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free