Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
280
Sauðfénaður.
Evrbyggju, að liaun var »forverksmaÖur góður, og tekinn
til þess. að honum hirðist skjótara hev en öðrum mörmum:
hann var og svo fésæll. að fé hans drapst aldri af megri
eða drephriðum.’)«
Það er eigi gott að giska á, hve fjáreign manna hefur
verið mikil á söguöldinni, um það er svo sjaldan getið.
fegar Olafur pá hafði reist bæ sinn í Hjarðarholti, lét hann
reka þaiigað búsmala sinn frá Goddastöðum: »01afur skipar
nú til, lætur reka undan fram sauðfé það, er skjarrast var,
þá fór búsmali hans næst. Síðan voru rekin geldneyti;
kl}Tfjahross fóru i siðara lagi. Svá var skipað mönnum
með fé þessu, að það skyldi engan krók rista. Yar þá ferðar-
’broddurinn kominn á þenna bæ en nýja, er Olafur reið úr
garði af Goddastöðum og var hvergi hlið á millis.2) Petta
getur verið alveg satt og fénaðurinn þarf ekki að hafa verið
ýkja margur, þvi vegalengdin frá Goddastöðum að Hjarðar-
holti er ekki nema 2100 faðmar i beina stefnu. Þorgils
orrabeinsstrjúpur fekk hjá Bjarna tengdasyni sinum tuttugu
kýr og hundrað ásauðar (120) og hlýtur Bjarni að hafa átt
eitthvað af ám eftir.3) Hrafnkell Freysgoði vistaði til sin
Einar forbjarnarson og setti honum þann kost, að hann
skyldi smala fimmtíu ám i seli,4) og bendir það ekki á
mikla fjáreign hjá svo miklum höfðingja. I Droplaugar-
sonasögu er getið um mann, sem eftir fellivetur seldi
öðrum manni 50 ær. I Reykdælu er þess getið, að maður
nokkur galt öðrum 60 sauði fyrir það. að hann hafði lostið
hann. Hörður rænti frá Indriða mági sínum á Indriðastöðum
i Skorradal 80 sauðum. I Hávarðarsögu Isfirðings er sagt,
að Porbirni á Laugabóli var vant 60 geldinga, en Olafur
Hávarðsson fann þá á fjöllum. I Bandamannasögu er þess
t
getið, að Oddui’Ofeigssoná MelgafEgli Skúlasyni á Borg fyrir
l) Eyrbvggja. Rvík 1895, kap. 30, bls. 69.
») Laxdæla, Rvík 1895, kap. 24, bls. 69. E. Dagobert Schönfeld
(Der islandische Bauernhof und sein Betrieb zur Sagazeit. Strassbarg
1902, bls. 212) kemst að þeirri niðurstöða, að Ólafur pá muni hafa
átt 12 þúsund kindur og 333 nautgripi!
«) Flóamannasaga. Rvik 1898. kap. 30, bls. 58.
*) Hrafnkelssaga. Rvík 1893, kap. 4. bls. 5.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>