Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
334
Sauðfjárrækt
notaðir.1) Sumstaðar er alls ekki setið hjá ánum, en þeim
slept lausum i heimahaga og orsakar það oft mikla
fyrir-höfn. staut og málnytumissir. Til mjalta eru ærnar reknar
lieim á stöðul; stöðultíðirnar eru vanalega dagmál og
nátt-mál, en sumstaðar nokkuð fyrr.2) Nytkunartími ásauða á
sumrinu hefir verið mismunandi. að fornu fari frá fráfærum
fram að göngum eða réttum, sumstaðar 11 —13 vikur,
sum-staðar 9—10 vikur. A.18. öld var það sumstaðar siður að
mjólka ær til veturnótta og telur Olafur Stephensen það
eigi borga sig, ef ánum er ætlaður útigangur, en á
gjafa-jörðum, þar sem ám má ætla fult fóður, telur hann það
réttmætt.3) Ærnytin yar fyrrum mikils virði fyrir fólk i
sjóplássum og með konungsbréfum 1778 og 1783 þótti
stjórn-inni ástæða til að fyrirskipa að Yestmannaeyingar mjólkuðu
ær sinar, þvi að þeir höfðu tekið upp á þeim ósóma, að
láta þær ganga með dilknm.4) Sumstaðar, þar sem fátt fé
er og fjörubeit, hafa ær fram á vora daga verið mjólkaðar
lengi fram eftir vetri, t. d. á Hornströndum og á sumum
eyjum á Breiðafirði.
Pað hefir verið gamall siður að tvi- og þrí- mjólka ær
i hvert mál, en reyndir búmenn ráða frá því og telja bezt
að mjólka hverja á vandlega einu sinni i mál. Magnús
Stephensen segir það hafi í byrjun 19. aldar verið siður að
mjólka ærnar kvöld og morgna, tvisvar i mál, til ágústloka
eða fjórum sinnum á dag: milli mjaltanna i hvert mál voru
þær látnar standa í klukkutíma, meðan verið var að mjólka
kvrnar, sumir mjólkuðu á sama tima þrisvar í hvert mál; í
september voru þær mjólkaðar einu sinni i mál, síðan einu
sinni á dag og svo annan eða þriðja hvern dag, þangað til
um miðjan nóvember; margir hættu þó að mjólka í
ágúst-lok, aðrir á Mikkaelsmessu. í>á voru ær hvergi látnar ganga
Sbr. »Piltur og stúlka« eftir Jón P. Thoroddsen. Jón R.
Por-bergsson: Hirðing sauðfjár 1912. bls. 29.
s) Á Fljótsdalshóraði voru 1882 stöðulríðir kl. 8 á morgna og kl.
8V2 á kvöldin.
») Gl. Félagsrít V, bls. 103—104.
4) Lovsamling for Island IV. bls. 421, 717—721.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>