- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
373

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Beit og útigangur

S73

útigangi. kom aldrei i hús, af því þau voru ekki til.1) Nú
mun það vera óvíða, að fó lifi eingöngu á útigangi, nema
í bezta árferði og þá helzt við sjávarsiðuna, þar sem mikil
fjörubeit er, og sumstaðar i eyjum, og svo í einstöku
fjall-lendum, þannig láta Fljótshliðmgar og Eyjafjallamenn um
200 fjár árlega ganga úti í Pórsmörk og nokkuð fó i
Goða-landi.3) I hinum miklu beitarhóruðum uppi i landinu
verð-ur sá peningur, sem aðallega, eða að miklu leyti lifir á
úti-gangi, að hafa eftirlit og hirðingu eins og annað fó ef vel
á að fara; fóð verður að hafa húsaskjól, sem það getur
leitað til, annaðhvort beitarhús, fjárborgir, hella eða
fjár-byrgi, þvi v.erður að gefa þegar þörf gerist, og það verður
að hjálpa því til að ná fæðunni, moka ofan af fyrir því o.
s. frv. Verður því jafnan að vera duglegur og harðgjör
fjármaður með kindunum, athugull og vanur því starfi. Það
er ekki lítið vandaverk að vera góður fjármaður, enda eru
þeir ekki á hverju strái.3) »Góður fjármaður, sem hiröir fó
sitt með nákvæmni, getur átt það i betra útliti, þó liann
e}Tði tvöfalt minna fóðri eftir tiltölu en annar, sem hirðir
það illa. en stendur að öðru leyti jafnvel að vigi sem hann.
Það verður að vera regla fyrir fjármanninn að halda fónu
i sem beztum holdum og útliti, en list hans er einkum
inni-falin i þvi, að geta þetta, og eyða þó sem minstu fóðri,
því vetrarbeitin er einn hinn bezti arður, sem bóndinn hefir
af hinuóræktaða landi jarðar sinnar, þar eð húnsparar
lieyforð-ann, en i sama stað kemur, hvort t. a. m. heyhestur er sparaður
með beit á vetrinum, eða heyhestur er fenginn i garð að

J) Fé er enn látið ganga úti á vetrum sumstaðar á Englandi og
Skotlandi, í Færeyjum, i eyjum við Noreg og viðar, og horfeliur
stund-um. I ýmsum úteyjum við Lofoten gengur sauðfé sjálfala úti flesta
vetur og þrífst allvel. A. Helland: LofoteD og Vesteraalen. Kristiania
1897, bls. 208, 212.

2) Jón H. Porbergsson-. Kynferði sauðfjár 1915, bls. 27.

s) Magnús Ketilsson telur í Sauðfjárhirðingu, bls, 124—126, þá
kosti, sem góður fjármaður þarf að hafa. Sbr. Gestur Vestfirðingur
I, bls. 52, 53—54. Jón H. Porbergsson: Um hirðing sauðfjár 1912, bls.
2-8, 53-55. Kynbætur sauðfjár 1915, bls. 41-44.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0391.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free