- Project Runeberg -  Reykjavík. Auglýsinga- og Fréttablað / Fyrsti Árgangur. 1900 /
18

(1900-1913)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Ltandsins gagn og nauðsynjar.

EFTIE PLAXTSOB.

III. Stjórnmál.

Hvað eru stjórnmál vor? Stjórnarskrárbreytingar,
stapp oft. um hégóma’ og næstum því heitingar.
Benedizkan, Valtízkan beriast um ráðgjafann,
blindandi munu vist allmargir þráð hafa’ hann,
því fádæma ógrynni’ er um hann í blöðunum
og alstaðar hafa monn ráðgjafa á spöðunum;
en engum ber saman, það er eftir tízkunni,
að allir sig halda þar fremsta að vizkunni.
Já, menn fara’ að rífast og meðalhóf brestur þá,
mál eru’ ei skoðuð og hver þykist beztur, sá
er flokk getur myndað og farið um sveitirnar
og fengið sér smala, sem hlahpa í leitirnar;
þeir fara’ um hagann með hrossabrest, marrandi
hvolpunum víða í sífelln arrandi,
fénaði öllum að stöðlinum stefna þeir,
stjórnmálafund þetta kviaból nefna þeir.
Heyrist, þá jarniur og hávaði’ í réttunum,
hljómar við bergmál í nálægum klettunum;
sumurn þykir ráðgjaflnn alls ekki alandi,
einkum sjá það börnin, sem varla’ eru talandi;
þau segja’ að vor stjórnarskrá enn sé við-unandi
og að það jafnvel sé meir held’r ’en grunandi,
hvort ástandi betra’ eigi aðrir að fagna
í útlöndum víða og því megi’ hún gagna
um langa tið enn þá; en ekki þau neita,
að öldungis nauðsynlegt sé henni’ að breyta.
Þau segja það oft sem ei eldra fólk skilur,
og úr þeim blæs vizkan sem moldöskubylur.
Landvættir allar þar undir og taka,
en engin sál skilur það samt, hvað þær kvaka;
þorskurinn sprangar um þurlendið svinglandi
þorskhausinn hristandi, kvörnunum hi’inglandi,
en hljórninn þó taka menn helzt í stað sannana,
því hringlið á bergmál í kollunum mannanna. —
Hvað eru því stjórnmál vor? Stjórnarskrárbreytingar,
stapp tómt, — í vösunum hnefanna steytingar.

^réííir úr éœnum.

Bæjarstjórnarfundir.

19. Aprll 1900.

1. Nefndin í málinu um kjör
erfðafestueigenda, sem hér eftir
koma til, lét uppi uppástungur um
ný erfðafestubréf og var frumvarpið
samþykt aí bæjarstjórninni með
nokkrum smábreytingum.

2. Samþykt að kaupa lóð og
vegarspotta af Jóni landrit.
Magnús-syni, fyrir norðan hús hans, ofan
að Skálholtsstignum, sem verið er
að leggja, fyrir 90 kr.

3. Til umbóta á Vesturgötu frá
Bryggjuhúsinu og vestur að húsi
Geirs Zoega veittar 80 kr.

4. Beiðni um vatnsból við
Lauga-veg vísað til veganefndar.

5. Áskorun frá „Framfarafélagi
Rvíkur" um breyting á lögreglu-

samþyktinni. Nefnd kosin til að
íhuga málið: Jón Jensson, Ólafur
Ólafsson og bæjarfógetinn.

Allir á fundi nema Sighv.
Bjarna-son, er dvelur erlendis.

Hin nýju erfðafestukjör, sem gilda
eftirleiðis fyrir óræktað iand
bæj-arins, eru í stuttu máliþessi:
Eftir-gjald þarf ekki að greiða i 2x/2 ár
eftir útmælingu; landið á að vera
girt að hálfu leyti 2 árum fyrir
fyrsta gjalddaga, en fullgirt lx/2 ári
eftir útmælingu, annars fellur landið
jafnskjótt aftur til bæjarins. Landið
á að vera ræktað á næstu 15 árum
eftir að það er fullgirt, þriðjungur
eftir hver 5 ár, annars hækkar
eftir-gjaldið alt að 50 %. Ef landið
geng-ur úr sér að rækt eða girðingu,
svo út liti fyrir, að það leggist í
auðn fyrir hirðuleysi eiganda (en

það skal metið af óvilhöllum
mönn-um), fellu* það til bæjarins aftur.
Eigandinn er skyldur aðláta af hendi
lóð til gatna og annara afnota í
bæjarins þarflr, að svo miklu leyti
sem bæjarstjórn og byggingarnefnd
álítur þess þörf.

Bæjarstjórnin ræddi málið mjög
ýtarlega, og kom það Ijóslega fram,
að henni var mjög ant um að gera
þessi erfðafestukjör svo úr garði,
að allir hlutaðeigendur mættu vel
við una. __

Ymíslegt,

Á sumardaginn fyrsta var hér
dágott veður, þótt ekki væri
hlý-indin. Voru menn eins og vandi
er til þenna dag stopulir við vinnu
og smá-gildi viðsvegar um bæinn,
og nokkrir enda „sæt-glaðir"; en
aðal-skemtunin „fyrir fólkið" stóð
og fjell með því, að
lúðurþeytara-flokkur Helga kaupmanns lék
nokk-ur lög á Austurvelli.

— Talsverður „feber" heflr gripið
suma bæjarbúa við að heyra
sög-urnar af flekkusóttinni. En
von-andi er, að hann líði nú frá, eftir
að laridlæknirinn, Dr. J. Jónassen,
heflr riðið suður og fullyrðir, að
þar sé enga flekkusött að flnna.

— Opinberlega trúlofuð eru: hr.
kaupm. Gunnar Porbjarnarson og
fröken Anna Jörgensen.

— „Leikfélag Keykjavikur" lék
í siðasta sinni á þessu leikári á
sunnudaginn var.

- Laugard. 21. þ. mán. kom
gufuskipið „ísafold", með vörurtil
J. P. T. Brydes verzlana, bæði hér
og’ i Borgarnesi, og til O. Ottesen
á Akranesi.

— Mánud. 23. þ. m. kom
segl-skipið „Ragnheiður" með alis konar
vörurtil W. Christensens verzlunar.

— Þriðjud. 24. þ. m. kom
segl-skipið „Ijitla-Rósa" með múrstein
og salt til Björns kaupm.
Krist-jánssonar.

— S. d. kom seglskipið „Anna"
með ýmsar vörur til H. Th. A.
Thomsens verzlunar.

Gestir.

— Nú er hér staddur i bænum
séra Jón Thorsteinsen á
Þingvöll-um og -feárðnr Thoroddsen læknir
i Keflavík með írú sinni.

D. Östlund prédika,r í
Goodtempl-arahúsinu á sunmrdagirin, kl. 6t/a síðd.

£ í T]arnargötu 4 fæst dagloga
keypt Kaffi ofi Cliacolade.

Eg undirritaður sel kommóður og
rúmMceði af allri gerð, og
vest-urfara-kúfort, alt með mjög góðu

verði. Rvík 26. marz 1900.

Gunnar Q-unnarsson, trésmiðvr.

í Þingholtsstreeti 23 geta þeir
sem óska fengið tilsögn i hanfiavinnu
fyrir börn, frá 14. Maí.

Nórdís Þorleifsdóttir.

p LesicI ~þér
’ Frœkorn ?
1 kr. 50 árið.

STULKA óskar að fá vist frá 14.
Mai næstk., helzt við
innanhúss-störf. — Upplýs. á afgr.st. ,Rvíkur’.

♦ Fountain Pens. ♦ Llndarpennar. ♦

• j?arl{er Jiindarpcnnar eru bc^íir. •
Einkasölu fyrir Island hefir D. Ostlund.

Supplement til isl. prdböger

I—III. er til sölu eomplet. Utg. vísar á.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 16:08:07 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/reykjavik/1900/0020.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free