- Project Runeberg -  Reykjavík. Auglýsinga- og Fréttablað / Fyrsti Árgangur. 1900 /
17

(1900-1913)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

R’EYKJAVTK



5. tbl. 1. árg.

Árgangurinn (alt að 20—25 tbl.) kostar hér í bænum 25 au.,
en 50 au., ef sent er með póstum.

29. apríl 1900.

Landsbókaaafnið cr opið hvern virkan dag. kl. 12
—2 og einni stundu lengur (til kl. 3) á mánud.,
miðvikud. og laugard., til útl&na.

Náttúrugripasafníð er opið á sunnud. kl. 2—3.

Forngripasafnið er opið á mvd. og ld. kl. 11—12 árd.

Landsbanlcinn er opinn bvern virkan dag kl. 11—2.
Bankastjórnin við frá 12—1.

Landshöfðingjaskrifstofan opin hvern virkan dag
frá 9—lO’/a, llx/a—2 og 4—7.

Amtmannsskrifstofan er opin á hverjum virkum
degi kl. 10—2 og 4—7.

Bæiar/ógetaskrifstofan er opin 9— 2 og 4—7, hvern
virkan dag.

Póststofan opin hvem rúmhelgan dag kl. jj—2 og
4—7. Aðgangur að Box-kössunum frá 9—9 dagl.

Afgreiðsla hins sameinaða gufuskiiiafélngs opin 9
—12 og frá 1—8 síðd.

Bæjarstjörnarfundir 1. og S. finvtud. hvers máu.

Fátœkranefndarfundir 2. og 4. fimtud. í mánuði.

Héraðslæknirinn er að hitta heima 2—3 dagl.

Augnlæknirinn er heima kl. 12—2.
Okeypisaugn-lækning á spitalasum 1. og 3. þriðjudag íivers
mánaðar, kl. 11—1.

Tannlæknirinn er heima kl. 11—2. Okeypis
tann-lækning (heimi hjá lækninum) 1. og 3. mánud.
í hverjum mántiði, kl. 11—1.

OkeypÍB lækning áspítalanum þd. ogföd., kl. 11—!•

Jl tvinnu-rógur.

I „Fjallkonunni", sem kom út
í gær (dagsett í fyrrada"fe), stendur
grein eftir „Bibliofilos’-, um
aftur-för í bókagerð og prentun.

Grein þessi er auðkennileg að
þvi, að það er alveg bersýnilegt
hverjum heilskygnum manni, sem
til þekkir, að hún er samin í alt
öðrum tiJgangi en þeim, sem hún
lætur i veðri vaka. Hún er ekki
samin til að vanda um lólegan
frágang á bókum að prentun og
pappír, því að þá hefði hún
auð-vitað snúið sér að því, að finna að
fráganginum frá þeirri prentholu.
sem aldrei hefir mér vitanlega
prentað neina bók, sem ekki er
handaskömm að-ytra frágangi. Hún
hefði þá ekki farið að víta
frágang-inn á prenti frá Aldar-prentsmiðju,
sem vitanlega leysir prentverk af
hendi i allra-beztu lagi eftir því
sem hér gerist.

Greinin er heldur ekki skrifuð
til að segja satt, heldur í
gagn-stæðurn tilgangi. Höf. greinarinnar
segir um mig: ,,Hann [Jón [-Ólafs-son]-] {+Ólafs-
son]+} hefir gott vit á prentun, og
hafði valið sér fallegt letur til
prentsmiðjunnar, meðan hann átti
hana, og haft góðan pappír." Af
þvi þetta er hrós í minn garð, er
mér ef til vill trúandi til, að ég

beri ekki af mér það af því, sem
ég á. En það verð ég að segja,
að letrið er ið sama í
Aldar-prent-smiðju nú, sem ég keypti til hennar
í öndverðu, en auk þess hafa
eig-endurnir bætt við nýjum tegundum,
Öllum fallegum. Prentun var
ekki nærri eins vel af hendi leyst
hjá mér, eins og hún er n ú
venju-lega í Aldar-prentsmiðju, og kom
það af því meðal annars, að ég
átti ekki völ á neinum prentara,
sem væri vel fær né vanur góðri
prentun. Að prentunin er svo
góð nú í Aldar-prentsmiðju, er
auðvitað að þakka herra 0stlund,
sem er einkar vandvirkur og
verk-hagur. Misjafn litur (of svart og
of grátt) hefir komið fyrir á örk i
einni bók, sem ég hefi látið prenta
í Aldar-prentsmiðju, og kom það
af því, að hr. 0stiund var ekki við
staddur, meðan hún var prentuð.
En slíkt kemur fyiir fult svo oft
hjá öðrum prentsmiðjum hér, þótt
ekki bætist ofan á að á sömu bók og
á sömu örk sé notað nýtt, hreint
letur og útslitið og klest eins og
t. d. á „Skírni".

Höf. talar um prentsvertu af
lökustu tegund, og skyldi menn
ætla, að það væri
Aldar-prent-smiðja, sem notaði hana. Meðan
ég átti Aldar-prentsmiðju, hafði ég
eingöngu góða enska svertu, sem
kostar ytra 1 kr. 80 au. pd., og
ætla ég, að engin prentsmiðja hér
önnur hafi hversdagslega
not-að svo góða svertu. Síðan ég
seldi prentsmiðjuna, hafa eigendur
hennar notað sömu svertu, keypta
af mér; þar til nú að síðustu, að
hr. 0stlund heflr farið að nota enn
þá miklu betri og dýrari svertu,
svo góða, að ég má fullyrða, að
t. d. „Félagsprentsmiðjan" heflr
aldrei haft svo góða svertu á
bækur, og ég held helzt engin
prent-smiðja hér á landi.

Greinin er auðsjáanlega skrifuð af
einhverjum, sem heflr — sjálfsagt
fyrir eitthvert tilefni — viljað eða
ætlað að gera greiða
Félagsprent-smiðjunni, sem kvað hafa heldur
litið að gera. Það er eins og hún

sé stýiuð af öfund yflr þvi, að
Aldar-prentsmiðja heflr nóg a,ð starfa og
hefir fengið lofsorð fyrir verk sitt.
Þar á meðal hefir i sjálfri
„Fjall-konunni" skáldið Bened. Gröndal,
sem engin mun neita um smekk
fyrir þvi sem fagurt er, hrósað
prentun Aldar-prentsmiðju. „Bjarki"
og „ísafoid" hafa gert ið sama.

Ég á ekkert lengur í
Aldar-prent-smiðju, og er ekkert við hana
rið-inn. Höf. í „Fjallk." segir, að ég
hafi vit á prentun. Þangað til
hann nafngi-einir sig, svo auðið sé
að víta, hvort hann hefir það lika,
vona ég góðir menn trúi því sem
ég hér hefi sagt, ótilknúður af öllum
öðrum hvöturn en þeirri einni, að
ég vildi bera hönd fyrir höfuð þeim,
sem ég sé að verið er að reyna
að gera rangt til, eingöngu af
ili-um og óhreinum hvötum.

Rvík, 28. Apríl 1900.

Jón Ólafsson.

til leigu.

Fyrir einhleypa 2 herbergi
Vesturgötu 37.

ágætuh panelpappi

(Vægpap), Rúllan, sem klæðir 100
□ álnir kostar kr. 6.50. Hann er
sá bezti panelpappi, sem hingað
hefir flutst að dómi þeirra, sem
reynt hafa. Fæst hjá

Sigfúsi Eymundssyni,

fataefni: Marínblátt Oheviot

og dökkgrá tau. unnin úr islenzkri
ull i norskri
ullarvefnaðar-verk-smiðju. Fást keypt i-búð

Sigfúsar Eyiuuiidssouar.

Óvanalega gott verð.

#*##*#####$#*########**

* Alt frá því á, dögum Adams hefir

* klæðasniðið verið að breytast, en
$ föt eftir alIra-nÝjustu tizku get.a

* rnenu ætíð fengið aaumuð hjá
J Gudni. Sigurðssyní skraddara

* Bankastræti 14.
S Hvergi eins vandaður frágangur

* og ódýreinsoghjá honum. Abyrgst

* að fötiu fari vel.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 16:08:07 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/reykjavik/1900/0019.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free