Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
3
^œjarsfjórnarfu ndur.
’.5. ÁlíÚBl
1. Uppástunga Knud Zimsens nm
breytt fyrirkomuiag við ijaugarnar og
á Laugahúsunum. Nefndin, sem skip
uð var í það mál, skýrði frá áliti sinu.
Till. nefnd. voru samþ. og málinu’
frestað til 2. umr. Nefndinni falið
að útvega áætlun um kostnað við
aðgerðir þær, er hún stingur upp á,
til næsta fundar, og auk þess, ef unt,
er, einnig um það, hvað kosti
frá-ræsluskurðir rneð meiru til að leiða
skolpið frá húsinu út i mýrina í stað
þess að veita þvi i Laugalækinn.
2. Magnús Benjamínsson o.fl. sækja
um að fá tii kaups 600 □ faðma i
norðurhluta Arnarhólstúns, þar seris
steinoliubyrgið hefir staðið, til að
byggja þar timburgeymsluhús og hafa
þar timbur-upplag. Málinu frestað
þangað tii vegurinn vestur yfir
Arnar-hólstún verður ákveðinn, hvar vera
skuli.
3. Pétur Porvarðsson á
Helgastöð-um tilkynti, að hann ætlaði að selja
Ásgeiri Sigurðssyni kaupm. nokkuð af
lóð sinni (blettinn og nyrðri garðana)
fyrir 1250 kr. B.stj. vildi eigi nota
forkaupsrótt.
4. Stefán Egilsson tilkynnir, að
hann ætli að selja Guðm.
Guðmunds-syni íshúsverði c. 200 □ faðma af
erfðafestulandi sinu við Grettisgötu
fyrir 15 au. □ al. Bæjarstj. vildi
eigi nota forkaupsrétt. sinn.
5. Björn Kristjánsson tilkynti, að
hann ætiaði að selja Eyjólfsstaðablett
fyrir 1000 kr. B.stj. vildi eigi nota
forkaupsrétt.
6. Helgi Zoega biður um veg a
erfðafestusvæðið milli Einarsholts og
Sauðagerðis og að veginum að
Sauða-gerði. Frestað til skoðunar á
staðn-urn.
7. Bæjarstjórnin ákvað að fara þess
á leit við þingið, að það léti gera við
Efí’ersey og veiti til þess nægilegt fé
úr landssjóði, 4500 kr. eftir áætlun
verkfræðings. Aftur á móti vill
bæj-arstjórnin skuldbinda sig tii að kaupa
eyjuna, fyrir það, sem
viðgerðarkostn-aðinum nemur, ef næsta alþingi vill
selja bænuin hana fyrir það verð. Er
formanni falið að gefa út
skuldbind-ingar-yfirlýsingu þessu viðvikjandi.
8. Brunabótavirðingar samþyktar:
Yerkfærask úr landssjóðs á
Arnarhóls-lóð 1350 kr.; hús Þorst. Einarssonar
við Hverflsgötu 3800 kr.
Jiandshornanna d tnilli.
Bruni. Fyrir skömmu brann
fa-brikka Ellefsens hvalfangara á
Önund-arfirði með öllu.
t Ólafnr Gnnnlaiijrsson í Sjóbúð
á Akranesi létst 10. þ. m. eftir
lang-vinn veikindi. llann var mesti
dugn-aðar- og atgerfismaður, um þritugt.
Á ferð í Ólafsvík,
Lag: Sig bœltli rpfur uud bjarkarót.
Nú er ég staddur i Ólafsvík
:,: undir Jökli. :,:
Ilér öll er bygðin svo yndisrik
:,: undir Jökli, :,:
en ufsinn, lúðan og ýsan feit
ber auð á land þar i hverri sveit
:,: undir Jökli. :,:
Það trúa ráðgjafann allir á
:,: undir Jökli, :,:
og einn þvi spurði mig, er ég sá
:,: undir Jökli: :,:
„Hvað? Ertu’ ei valtýskur anginn
þinn?" —
„Jú! Ójú! Pað er óg, dengsi minn!
:,: undir Jökli." :,:
„Nú, jæja! ef það er svo, þá er gott
:,: undir Jökli; :,:
að hinum gerum vór háð og spott
:,: undir Jökli. :,:
Hann Einar ræður hór manna mest,
ég met hann á við vorn góða prest
:,: undir Jökli." :,:
En annars hélt ég i Ólafsvik
:,: undir Jökli, :,:
að væri’ ei prédikuð pólitík
:,: undir Jökli, :,:
en þekking brást mér í þetta sinn,
því þar er stjórnmála-háskólinn
:,: undir Jökli. :,:
Á daginn keppast menn verk sin við
:,: undir Jökli, :,:
en lesa blöðin um lágnættið
:,: undir Jökli, :,:
og þar er „ísafold" þulin oft,
en „fjóðólf" varpað i Svörtuloft
:,: undir Jökli. :,:
Ég hólt að væru mest heimskingjar
:,: undir Jökli, :,:
en það er öðru nær, — alstaðar
:,: undir Jökli :,:
nú flnnast bændur með góðri greind
og gull af mönnum i sjón og reynd
:,: undir Jökli. :,.
Og þvi ber Ólafsvík Ennið hátt
:,: undir Jökli, :,:
að þar er fólkið svo frjálst og kátt
:,: undir Jökli, :,:
og þar er sambland af eldi’ og ís
í allra sjófanga Paradís
:,: undir Jökli. :,:
Plausor.
Herbergi tll leigu tyrir einhleypa
á Bókhlöðustig 8.
^(r höfuðaíaðnum.
„Fritlliof" (skipstj. Pedersen) kom
i fyrra dag frá útlöndum með kol til
gufuskipafólagsins og steinoliu til J.
P. T. Bryde og Nýhafnar.
„Alig’USt" (skipstj. N. H„ Dreie) kom
sama dag með kol frá Dysart til H. Th.
A. Thomsen.
Trúiofuð eru Bogi Pórðarson tró
smiður og ungfrú Sesselja
Eiriksdótt-ir á Helludal i Biskupstungum. Sömul.
Hjörleifur Þórðarson trésmiður og frk.
Sigriður Rafnsdóttir hór i bæ.
Dánarlisti. 28. Júní: Helga
Ing-gjaldsdóttir, ógift kona i Sölvhól (61).
29.: Ingibjörg Friðriksdóttir, gift kona,
dó á Laugarnesspítala. 4. Júli: Sólrún
Eiriksdóttir (42). 7. Júli: Bjarni
Jör-undsson smiður (47). 8.: Guðríður
Pórðardóttir, ekkja i Grettisgötu (78).
9.: Porbjörn Bjarnason, lausamaður,
Vesturg. (32). 23.: barn Jóns
Sveins-sonar snikkara. 25.: Björg
Sigurðar-dóttir, gift kona Austurstr. 18 (27).
26.: Björn Sigurðsson á Laug.spít. (29).
27.: Kristján Sigurðsson, piltur frá
Pvottá í Geithellnahreppi (18). 28.:
barn Jafets Sigurðssonar skipstj. S.d.:
barn Fiunboga Finnbogasonar skipstj.
30.: Bened. Jónsson verzlunarmaður
(37). 9. Ág.: Sig. Magnússon fyr
kaup-maður (51). S. d.: Páll Stefánsson,
Pósthússtr. 17 (1 árs).
SíúíRa,
sem er heilsugóð og getur sýnt góð
meðmæli, getur fengið stöðuga vinnu
nú þegar. Borgun á kaupi
mánaðar-lega. — Útg. visar.á._
ný,[asta_
NÝTTJ
Sýnishorn af fleiri hundruðum fata
efna kom með „Ceres", og geta þeir,
sem vilja, eins og að undanförnu,
pant-að eftir þeim fyrir veturinn 1901—
1902. Öll tauin eru ljómandi falleg,
og ódýr, svo stór sparnaður er að.
Komið i tima, áður en skipin fara.
BANKASTRÆTI 14.
<3uém. Sigurésson.
dunéur
i „Trésmiðafélagi Reykjavíkur"
Laug-ardaginn 17. þ. m., kl. 8^/2 siðdegis,
á vanalegum stað.
q/ hefit’ lj’ósrauð hryssa., úr
1 pössun á Vatnsenda, al-
járnuð, mark: heilrifað hægra. Sá, sem
kytmi að fiuna hryssu þo.ssa, e.r beðinSn.’ um
rað kotua lieuni til Jóhaunesar
Sigurðsson-ar, Móakoti, Reykjavík, gegn borguu.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>