- Project Runeberg -  Reykjavík. Auglýsinga- og Fréttablað / Annar Árgangur. 1901 /
35:3

(1900-1913)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

8

;6cejarsfjórnarfundur.

17. Okt.

1. Samþ. var, eftir tillögum
alþýðu-styrktarsjóðsnefndarinnar, að veita 20
persónum styrk úr sjóðnum, 20 kr.
hverri. — 2. Var ályktað að kaupa
undir iengingu á Lindargötu
Eyjólfs-ataðabæ og lóð c. 1270 □ al. fyrir
350—360 kr. — 3. Docent Eiríkur
Briem var kosinn til að taka þátt í
samningu verðlagsskrár. — 4. Visað
til veganefndar beiðni um veg að húsi
Ben. Gröndals. — 5. Ályktað að fella
burt 4 kr. af aukaútsvari Rannveigar
Sigurðardóttur f. árið 1900. — 6. Felt
burtu aukaútsvar Bjarna
Guðmunds-aonar trésmiðs fyrir yflrstandandi ár,
25kr., en hann erfarinn tilAmeriku.—
1. Frestað að útkljá beiðni um
eftir-gjöf á aukaútsvari Oddbjargar Guð
laugsdóttur. — 8. Bjarna Árnasyni
beyki eftirgefinn helmingur af auka
útsvari hans yfirstandandi ár.—9. Agli
Diðrikssyni veitt ókeypis kensla í
barnaskólanum fyrir son hans, ef
skólanefnd þykir fært. - 10. Erindi
Sigf. Eymundssonar um lóðarútvisun
upp af Stekkjarkotstúni. Vísað til
byggingarnefndar. — 11.
Brunabóta-virðingar samþyktar: Hús Þorkels
Ei-rikssonar á Sauðagerðislóð 1745 kr.;
hús Magnúsar Pálssonar við
Laufás-veg 2265 kr.; hús Gisla kaupm.
Björns-Bonar við Laugaveg 3075 kr.;
Geymslu-skúr við hús Magnúsar Guðnasonar
við Laugaveg 455 kr.; hús Gísla
Þor-kelssonar við Laugaveg 4145 kr.; hús
Ástráðs Hannessonar við Lindargötu
5975 kr.; hús Odds Gislasonar
máls-færslumanns við Laufásveg 11030 kr.;
hús Bened. Jónssonar sótara við
Skóla-vörðustíg 2329 kr. — 12. Ályktað að

veita til vegaJagningar að
aldamóta-garðinum 200 kr. — 13.
Veganefndar-mennirnir báðust þess að fá lausn frá
veganefndarstörfunum og var þeim
veitt það frá næsta fundi.

semi til nð koma út á prent danskri
málfræði, og að hann skuli hafa gert
það á þann hátt, að tekið er tillit til
hins nýjasta í þessari grein. Hér er
t. d. ger munur á ö og o í dönsku,
eftir framburði, og hafa ekki yngri
mennirnir mætt sig á því hingað tll.
Þó að örlitla ónákvæmni kunni að
mega finna á stöku stað — t. d. er
sama hljóðið (öj og ög i Öje og Lögn)
á 5. bls. táknað (réttilega) með oí, en
á 8. bls. með ój. Auðvitað á höf.
hér við danska hljóðið öj = oí; en
ijósara hefði verið að tákna það (eins
og á 5. bls.) með ísl. stöfunum oí.

Misletranir eru alveg furðanlega
fá-ar. Ég hefi tekið eftir á 3. bls., 3.1
a. o. ó f. á. Á sömu bls. í 11. línu
mun og i vera prentvilla f. e: „sem
t [fyr. e] yfir höfuð þar sem það er
stutt." Á 29s hefir „í" fallið úr
lin-unni aftast i prentuninni.

Peim sem vilja læra meira, en að
skilja dönsku, vilja geta talað og
skrif-að málið rétt, er nauðsynlegt að lesa
slika málfræði. Menn þurfa ekki endi
lega að læra utan að allar
upptaln-ingar slikra bóka, en menn eiga að
ná-kynna sér þær.

Með þessum orðum vildi ég benda
nemendum á bókina. Ég hefl hvergi
séð hana auglýsta og veit ekki hvað
hún kostar. Lesari.

^ó^arfregn.

DJjnsk málí’ræði. Eptir Halldór Kr.

Friðriksson. 2. útgáfa endurbætt.

Rvík 1901.

Merkilegt er það, svo margir sem
dönsku hafa lært hér á landi, að eigi
skuli hafa til verið nema ein dönsk
málfræði, og hún nú útseld i fjórðung
aldar eða meir. Ég tel varla þau
stuttu og þvi ófullkomnu ágrip, sem
verið hafa framan við sumar
lestrar-bækur á dönsku. Það er ekki siður
markvert, að höf. þessarar dönsku
málfræði, maður nú á niræðisaldri (á
83. ári), skuli enn vera sá eini
mað-«r landa vorra, sem hefir framtaks-

(iveir ^uðsmenn i fengeyjaraplu.

„Góður er andinn!"

Jón Árnason.

í „Reykjavíkinni" stóð 7. f.m. þessi
frétta-grein:

„Presttiólar veittir séra Halld. Bjarnar.
syni aftur, eins og getið var til áður hér
í bl., enda liafði hann haft moiri hlvita
við kosninguna, því nokkrir, sem í fyrstu
voru taldir á móti honum, höfðu þegar
til kom, ekki kosningarrétt, svo að meiri
hlutinn varð hanB megin."

Þessi frásögn er í alla staði sönn
og rétt,.

Eins og blaða-útgefendur tíðka,
send-ir útgef. „Rvíkur" stundum ókeypis
sýnishorn af blaðinu út um alt land.
Þannig var t. d. þetta tölublað sent
öllum hreppsnefftdaroddvitum á
land-inu (auk margra annara), og komst
tannig i hendur séra Bened.
Krist-jánssyni, sem er oddviti i hrepp
sín-um.

Séra Benedikt er vist alt af
eitt-hvað viðkvæmt i meðvitundinni að
heyra séra Halldór og Presthóla nefnda.
Hann brást svo styggur við að fá
„Reykjavikina" með fregn þessari i
hendur, að hann ritaði útgef. hennar
opið bréfspjaid með pósti svo látandi:
„Grenjaðarst. 80/9 —01. — Sem
odd-viti Aðaldalahrepps hefi ég meðtekið 27.
—29. tbl. blaðsins „Rvík" þ. á., og skal

ég hérmeð skýra yðnr, herra útgefandi
þe»s blaðs, frá því, að ég kaupi ekki
blað, sem flytur aðra eins lýgi eins og
„Reykjavíkin" flytur i 28. tbl. viðvíkjandi
veitingu Presthóla, ekki einu
sinni þó blaðið kostaði 1 eyri í ítaðinn
fyrir 1 kr.

Vinsamlegast

B. Kristjánsson."
Ef útg. Rvíkur vill, er
honum-auð-vitað innanhandar að láta hirta
pró-fastinn á Grenjaðarstað samkv. 219.
gr. hegningarlaganna fyrir
„lygi"-áburðinn i þessu skjali. — Sem
póst-afgreiðslumaður hefir hann brotið 4.
gr. tilsk. 26. Febr. 1872 um póstmál. —
Um það, hve atferli hans sæmi vel
presti og prófasti, getur byskupinn
án efa frætt hann í tómi1.

— Þórleifur heitir klerkur og býr á
Skinnastað; honum hefir líka sezt
fyrir brjóstið veiting Presthóla. Hann
reit með siðasta pósti blaðamanni í
Reykjavik á þessa leið:

„Stað í Öxarfirði. Þingeyjarsýsla.

1. Okt. 1901. — Kæri vin.....Dóri

tekinn aftr við (endurvígðr af Gunnu);
ritaði sr. P[áli] á Sv[al]b[arði] nú fyrir
4 dögum og sagði honum að liætta
öll-um prestsverkum þarytra. Páll hlýddi,
svo að ég hefi staðið i þvi þessa 4
undan-farna daga að gifta tvenn hjón og skíra
þar ytra, ea Páll hljóp frá eins og
koll-ótt prik. Nú œ 11 i fyrst að verða
dá-litið „sukk" og sögulegt í héraðinu.

..... Þorleifr Jónssou."

Þessi bréf þessara tveggja
guðs-manna í Þingeyjarsýslu lýsa vel
and-anum hjá þeim báðum og
góðgirn-inni og friðseminni gagnvart séra
Hall-dóri. f*ví hefi ég birt þau með leyfi
þeirra, er þau eru til skrifuð.

J6n ólafsson.

^r fiöfuðafaðnum.

Málfundur sá, er getið var í
síð-asta blaði, var haldinn að tilhlutun
stúk. „Einingin" á Sunnudagskvöldið,
fyrir nær fullu húsi (að mestu
utan-Reglufólk). Þar talaði héraðslæknir
Guðm. Björnsson, sagfifræðingur Jón
Jónsson og verzlunarmaður Borgþór
Jósefsson. Þótti ræðumönnum takast
prýðilega. Að endingu talaði
alþingis-maður höfuðstaðarins, Tr.
Gunnars-son, þakkaði fyrir boðið, og kom
ljós-lega fram í ræðu hans eindreginn vilji
á að styðja málefni Good-Templara.

Fénaður er i háu verði í haust.
Ilafa kaupmenn hér sent. menn í allar
áttir til fjárkaupa, að dæmi
Thom-sens verzlunar, og láta bændur hér
úr nálægum sýslum hið bezta yfir

1) Séra B. Kr. var e k k i settur
prófast-ur nú í N.-þingey.s. og hafði því engin
embættisafskifti af þvi, er vilja safnaðanna
var leitað um veitinguna. í þ e 11. a sinn
hafði h a n n því ekki liaft færi á að segja
jfirvöldunum rangt frá í cmbættisnafni.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 16:08:10 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/reykjavik/1901/0141.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free