- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
628

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

594

hirðstjóra. annáll. 628

1361 eptir Flateyjarannál kom hann hingað sem hirðstjóri ót í
Grindavík. Hann er af nokkrum nefndur Jón*) Smiður. Hafði
hann leigt land um 3 ár og var hirðstjóri yfir það alt. Með
honum komu át mörg kóngsbréf. Hann sýnist vera skyldur
Bóthólfi hirðstjóra, því Kafn lögmaður Bóthólfsson segist hafa
verið grafinn hjá Smið Andréssyni frænda sínum á Hólum og
getur það vel staðizt að Bóthólfur og Smiður hafi bræður verið
vegna tímalengdarinnar, þar ein 19 ár voru þess milli Bóthólfur
kom og Smiður varð hirðstjóri. Báðir voru og Andréssynir2). —
Á þessum tímum var sundurlyndi mikið með Jóni biskupi
Eiríks-syni skalla og Eyfirðingum, sem og að Jón skráveifa hatði þungt
geð til þeirra fyrir hraktarir sínar, sem áður getur.

Séra porsteinn Hallsson, sem verið hafði officialis
Hóla-stiptis, reisti sig um haustið 1361 upp á móti Jóni biskupi, og
lét alla presta á milli Öxnadalsheiðar og Reykjadal? handsala
sér hlýðni; riðu síðari til Hóla á Katríuarmessu og afsögðu
nefndir prestar og leikmenn úr Eyjafirði alla hlýðni, og kváðu
hann vera Grænlendingabiskup, og tóku séra forstein fyrir sinn
yfirmann.

Anno 1362 var aptur fundur á Hólum Tiburtii dag eður
14. Aprilis; komu þá að norðan allir Eyfirðingar, lærðir og leikir
samt hirðstjórinn Smiður, til að semja þá óeining, og varð ei
af sáttum. Sigldi séra J>orsteinn samsumars ogforsteinn
Eyjólfs-son með öðium fleirum, sem áður segir.

Eptir afstaðið alþing og liðna Pétursmessu reið Smiður með
nokkrum Sunnlendingum3) sama ár, og Jón skráveifa, sem ekki

’) Jón er hann einnngis nefndur í einum annál á pappír (Á. M.
4to, stutta annál eða réttara Oddaannál), og mun það eflaust rangt
og seinni tíma tilbúnÍDgur, sprottinn af því, hvað nafnið Smiður var
fágætt.

’) Sbr. Lögmannatal hér að framan (72. bls.) og ísl. annála við ár’ð
1391. Jón Pétursson ætlar það sennilegt, að þeir bræður hafi verið
íslenzkir að ætt og af ætt Oddaverja, en ekki norrænir, sem flestir
hafa ætlað hingað til (sbr. Sýslumannaæfir I 144). Ætternis þeirra
cr að minni vitund hvergi getið, en eltki er þó ólíklegt eptir
nöfn-unum að dæma, að þeir kunni að hafa verið norrænir.
Andresar-nafriið er miklu tíðkanlegra í Noregi en áíslandium þessar mundir,
Bóthólfsnafnið keinur og mjög sjaldan fyrir í íslenzkum ritum áðu>
og Smiðsnafnið öldungis ekki. Af þesstt verður þó ekkert ráðið til
hlítar.

*) «Eigi ört bálfur fjórði tugur manna>, segja annálar.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0640.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free