- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
660

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

654

hirðstjóiía annáll. 660

AMBROSIUS ILLIQVOD.

Anno 1491 var hann hér hirðstjóri, bæði eptir Crymogæu
og annálum. Á því hausti fór Ambrosius hirðstjóri norður í
Eyjafjörð. Var samfundur haldinn á Spjaldhaga; sótti hann
eptir sektum kóngsins vegna hjá Bjarna Ólafssyni2) á
Hvassa-felli fyrir þau stórmæli, er hann var dæmdur í fallinn af Ólafi
biskupi Rögnvaldssyni fyrir legorð með Randíði dóttur sinni,

frægasti sjóvíkingur á sinuiri tíma. 1478 varð hann hirðstjóri
yfir íslandi (sbr. 655. bls. 2. athugagrein), þó líklega einungis fyrir
sunnan og austan, og það h’efir hann verið fram um 1481.
Eptir það fór hann utan og lagðist í víking með Jakobi jungkæra,
frœuda Hans kóngs. Jakob þessi dó 1484, en Píning helt
hernaðin-um áf’ram í ýmsum stöðum þangað til 1487, að Hans kóngur fór
her-fiirina til Gotlands. Pining fór með kóngi, og varað öllum líkindum
aðmiráll yíir öllum flota Daua. Árið eptir var hann með Hans kóngi
og 1489 var hann einn af þeim norsku aðalsmönnum, sem hyltu
Kristján (annan) kóngsson sem líkiserfingja i Noregi. Arið eptir
var hanri i Björgvin og úr því vita menn ekkert annað um hann, en
en að hann gaí’ út Piningsdóm á íslandi 1490 og hafði þar þá
hirð-stjórn. Ura sama leyti hafði hann og Varðhús (Vardöhus) i Noregi
að léni. Sagnir eru og um að hann hafi rekið verzlun á Grænlandi
(Grönl. hist. Mindesmærker lll 479—80), en þær eru ekki
allsenni-Jegar. Um dauða Pínings vita menn ekkert nema óáreiðanlegar
sögur seinni raanna.

Se nú þetta horið samati við hirðstjóra annál og frumbréf, sem
enn eru til, liggur það i auguin uppi, að Píning hefir verið tvisvar
sinnuin hirðstjóri á íslandi, því óhugsandi sýnist mér að hér sé átt
við tvo hirðstjóra samnefnda, einsog Finnur biskup heldur (Hist.
Eccl. II 245). Fyrst hefir hann þá verið hirðstjóri 1478—83, og þá
Iiklega ekki nema yfir nokkrum hluta lands, því það er vist að
Hinrik Daníel var hirðstjóri 1480. Verið getur og að ártalið 1478
sé efasamt. 1483 liefir hann farið utan og verið í víkingu þangað
til 1487. það ár hefir hann liklega fengið hirðstjóm yfir öllu
Is-landi eptir dauða þorleifs Björnssonar, en ekki farið þangað fyr en
1489. Uni það leyti hafði hann umboðsmann á íslandi, Hinrik Mæðing,
sem borgaði Finnboga lögmanni löginannskaup sitt 1488 (sbr. 94.
bls. hér að framan). 1490 er seinasta lögstjórnarár Diðriks Pínings,
og þá hefir liann farið alfarinn af landi burt, en Amhrosius Illiqvod
tekið við.

’) Leiðrétt fyrir: varð, sem ekki sýnist að geta staðizt hér.

2) Bjarni þessi er af sumum kallaður Ólason, en ekki veit eg hvort
réttara er.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0672.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free