- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
678

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

678

HIRÐSTJÓIÍA ANNÁLL. 670

doininicam oculi ’), dóm ganga yíir Kláus von Marvitzen fyrir
hans rán og manndráp, mun eiga að heimfærast til ársins
15422).

DIDEIK VON MYNDEN.

Hann var einn Hamborgari, bróðir Korts von Mynden,
kaupinanns lengi í Hafnaiíirði. Hafði 12 ár eður lengur verið
á Bessastöðum bæði ráðsmaður og annað, illa ræmdur og
óþokk-aður af vondum orðum og gjörðum, áverkum, höggum og
grip-deildum við aðra 3) menn.

Anno 1539 er að ráða hann sé orðinn hér kóngsins fógeti,
sem áður greinir. J>ó klaustur og múnklífi með þeirra eignurn
væri utanlands nú komin undir kónginn, samt iinn eg ekki, að
kóngleg majestet4) liafi befalað Diðrik að taka þau undir sig
hér í landi, því hvorki auglýsti Diðrik þá befalingu né hafði þá
aðferð, sem einum kóngs befali’ngsmanni sómdi í svoddan erindi,
heldur sýnist hann hafa tekið þetta sér fyrir hendur5) af sjálfs
síns vilja, og hann sá, að svo gekk til utanlands. £>ar með var
Viðeyjarklaustur svo nálægt kóngsgarðinum Bessastöðum og svo
hollar og hagkvæmar þess inntektir. Hvorki er þess getið, að
hann hafi beiðzt eður beðizt áður klaustursins kónginum til
handa, eður haft nokkra laga aðferð, sem einum réttskikkuðum
yfirvaldsmanni bar að hafa, heldur sem annar ræningi og
her-vikingur lúrði hann eptir hentugasta tækifæri, þó sem annar
griðleysingur, til að grípa þetta klaustur; því, þegar fyrirmaður
Viðeyjarklausturs, ábóti Alexíus Pálsson, var eptir venju með sina
þénara riðinn í fardaga úttektir, var bæði karlmanna fátt og
fyrirmannslaust heima á klaustrinu. Kom Diðrik með útbúnu
fylgdarliði þangað á sjálfa hvítasunnu um sólaruppkomu, öllum
óvart og fólki í svefni; hrakti hann og hans þénarar og barði

þ. e. þriðja sunnudag i föstu.

’) þetta er rétt Finnur biskup segir (II 283), ab Kláus hafi þett.a ár
verið dænidur í ævilangt varðhald í Fiensborg, en verið þó náðaður
epir tvö misseri.

3) Marga, B.

J) þ, e. hátign.

’) Bæði, bætir B við.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0690.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free