- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
689

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

hirðstjóra annáll.

689

Stígsson með stríðsfólk og skip, til að gjöra innfall í Skáni. Tdk
Otti með makt Polbitsberg, stað og slot, og Aabús, brendi og
brældi niður hvar hann kom og gjörði hið mesta hervirki, æsti
upp innbyggjarana til fráfalis og upphlaups á móti Friðriki
kóngi, og gekk í orustu með 2000 bændum á móti kóngsins
hers-höfðingja Jóbann Raiitzow, hver eð rak Otta á flótta ’) og drap
fjölda af bænda múganum. feii- sem lífi héldu, friðkeyptu sig
með því, að þeir gripu Otta Stígsson og færðu hann
hershöfð-ingjanum Rantzow, en bann sendi haun fanginn Friðriki kóngi.
Klöguðu margir fyriv kónginum yfir hans illvirkjum, og einna
helzt Knútur Pétursson Gúldenstjerne, fyrir það Otti hefði rænt
og brent hans herragóz, og var Otti því dæmdur frá lífinu.
Otti tók það til ráðs, að hann sagðist vita, hvar mikill
fjár-sjóður af arabísku gulli og önnur klenódía væru geymd í jörðu,
sem Kristján kóngur annar hefði leynilega látið niður grafa, áður
hann fór burt úr landi; á það vildi hann vísa, ef hann fengi
líf; var þá lifstraffinu frestað um stund. EnÁlfeiður frilla hans,
prestsdóttir úr Noregi, fór á meðan, sem hún kunni, alt í kring,
fékk af stórum herrum og jafnvel hertogum að biðja um vægð
á straffinu fyrir hann, svo hann fékk líf með því skilyrði að
hann lofaði að þjóna Fiiðrik kóngi með trú og hollustu alla
sína lífs tíð. Fésjóðurinn eður gullið, sem hann vísaði til, fanst
ekki, og sagði hann þá, að það hefði verið þaðan burt tekið af
öðrum.

Tímans vegna getur þetta verið einn og hinn sami Otti
Stígsson, sem hér var höfuðsmaður, hvort sem hann var það
eður ekki2). (Yide Holb. vit. Frid. I. p. 207 3).

J) Orustan stóð við Bruuktofte-Lund 29. apríl 1525. Svo segja menn,
að Otti hafi flúið undireins í byrjun bardagans, en bændur fundið
hann seinna og fengið hann kóngsmönnum. Ort var níð um hann
fyrir þetta, seni nokkuð að minsta kosti er til af.

2) Ættarnafn Otta þessa Stigssonar var Ulfeld og hann var
aðals-maður og seinna riddari. Holluslubréf hans er enn tii (prentað í
• Kong Frederik den förstes danske Registranter udgivne ved Kr.
Erslev og W. Mollerup’ Khöfn 1879, 79. bls.) og eptir það kemur
hann optar fyrir (sbr. sömu bók). 1532 er hann í Noregi i miklum
veg og nefndur meðal iénsmanna þar: »Her Otte Stigszen, ridder
[och] kongen aff Swerigs naaboo’. 1534 er hann yfirmaður í
Ný-borgarhöli. þessi Otti er eflaust sami maðurinn sem sá Otti
Stigs-son, sem var höfuðsmaður.

s) þ. e. Danrnerkursaga eptir Holberg, 2. band, 207. bls.

43

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0701.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free