- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
699

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

HIRÐSTJÓIÍA ANNÁLL.

699

Eptir aftöku Jóns biskups og Oddeyrardóm genginn þurfti
hér í landi við stórrar leiðréttingar, að koma reíormationi á
vissan fót og staðfastan grundvöll, ogsvo1) veraldlegri stjórn eptir
svoddan óróa og umveltan. Og af því kóngleg majestet þekti
Pál Hvítfeld að vera að forstandi og framkvæmd reyndan, þá
skikkaði hans majestet hann hingað höfuðsmann anno 1552, með
aðskiljanleg erindi ogbefalingar útgefnar 1552, 1. að stipta hér
tvo latínuskóla hjá hvorri dómkirkju fyrir sig, og leggja til
þeirra af dómkirkjunnar gózi til skólameistaranna og heyraranna
launa, sem og skólapiltanna uppeldis, svo mikið sem
nauðsyn-legt væri, 2. að setja Eggert Hannesson til fullmektugs fógeta
og umboðsmanns yfir alt ísland, 3. að láta straífa þá
mann-drápara, sem Kristján og hans fylgjara slógu í hel, og annað
fleira, sem Páll Hvitfeldur hér út rétti á því sumri, og sigidi
héðan aptur. Anno 1553 var liann hér höfuðsmaður, sem Ijóst er
af hans qvittanziu upp á þann helming af lausafé þeirra Ara og
séra Björns Jóns biskups sona, sem féll undir kónginn, út
gef-inni anno 1553, sem og skiptabréfi hans um löggjafir Ara
Jóns-sonar á sama ári. Og þó Eggert Hannesson kallist í sumum
dómum eður bréfum, sem gjörð voru á þessum árum, hirðstjóri
eður höfuðsmaður yfir alt ísland, samt var hann einasta
full-mektugur Páls Hvítfelds, en Hvítfeldur sá rétti hirðstjóri.

Anno. 1554 var Páll Hvítfeldur hér og kallast útþrykkilega
höfuðsmaður i alþingisdómi lögmannanna, Eggerts Hannessonar
°g Odds Gottskálkssonar, fyrir hverjum hann klagaði Orm
lög-ffiann Sturluson fyrir skuldir við kónginn, sem hann gat ekki
borgað, og fyrir það hann hafði i kóngsins óleyfi burtselt eina
kóngsins jörð, sem Ormur gat ei afbatað og misti því
lögmanns-d®mið það sinn. £>að sumar sigldi Páll Hvítfeldur héðan; var
hann hér höfuðsmaður 3 ár.

Anno 1563 var hann í því stranga stríði í millum kóngs
Friðriks annars og Svíakóngs Eiríks, sonar Gustafs2) kóngs,
commendant yfir borginni Halmsteð, hverja Eiríkur kóngur
um-kringdi alt i kring með herskildi, dag 2. október, og gjörði tvisvar
hin grimmilegustu stríðsáhlaup til að inntaka hana.
EnPállHvít-feldur varði hana með svoddan karlmensku, að Svíakóngur mátti,
ePfir 6 vikna beleiringu, víkja í burt, og ávann ekkert.

) Sem og B.
Gustavi B.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0711.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free