- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
707

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

HIRÐSTJÓRA ANNÁLL.

707

móti halda aðrir, að Hinrik Krag, sýslumaður í
Snæfellsnes-sýslu, sé sá, sem var hér höfuðsmaður anno 1591, og þá
mein-ingu styrkir Björn á Skarðsá í síirum annál við áiið 1566.

NB. f líkprédikun M. Michaelis Tistorphum sóknarherra til
Nicolaikirkju í Kaupenhafn, haldinni eptir Otto Krag anno
1666, stendur: Otto Kraghs föður-móður-faðir (o: langafi) var
Erich Kragh til Votberrig, kóngsins befalingsmaður á íslandi.
En hvenær sá Erich Kragh hafi hér höfuðsmaður verið alt frá
1548 eður jafnvel 1537 hefi eg ei fundið. Eg vil ei til geta, að
misprentað sé Erich Kragh fyrir Henrich Kragh.

KKISTOFEE WALCHENDOEPH TIL GLOEUP.

I tíð kóngs Kristofers af Beyren (sic.’) komu inn í Danmörk
og lentust þar þeir aðalsmenn von Walchendorph; voru komnir frá
Týról (vid. Heldvad. pag. 300), hverra ættmenn voru þar
frí-herrar í tíð kóngs Ivristjáns fjórða. Af þeirra slekti var
Kristo-fer Walchendorph aðalsmaður, og þénti Danmerkur kóngum,
bverjum eptir annan; varð að síðustu ríkisins hofmeistari og
sezti herramaður í Danmörku á hans dögum. Hann var
hof-júnchur1) i tíð kóngs Kristjáns þviðja. Undir Friðriki kóngi
öðrum var hann lénsmaður yfir Gullandi; þar eptir var hann
lénsmaður í Bergen í Noregi, og niður dempaði þar með miklum
^yndugleik þá stóru makt og yfirgang þeirra Lybsku kaupmanna
1 Bergen. En orsök til hans hingaðkomu2) voru aðskiljanleg
Wögumál Islenzkra fyrir kónginum, þar hér var enginn
hirð-stjöri til að greiða úr þeim, sem voru: 1. klögun Orms
Sturlu-sonar á móti Eggerti lögmanni, að hann næði ekki norðan- og
vestanlögdæminu fyrir honum eptir kóngsins skipan með öðru
fleira, sem þeirra fór á milli. 2. klögun Orms yfir arfaskiptum
eptir J>orleif bónda Grímsson, föður I3orbjargar, konu Orms.
3. klögun séra Gí’ðbrands I>orlákssonar (sem síðar varð

’) Hötuðjúnkör B.

) Erindisbref hans er út geflð 29. apríl 1569 og þar í stendur meðal
annars, að bæta sknli laun kennaranna við Hólaskóla. Sama dag
er annað bref út gefið um það að biskupar skuli gefa Walkendorph
registur yfir jarðir þær, sem þeir sjálfir eða prestar njóti uppeldis
af (Hist, Eccl. III 3).

44*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0719.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free