Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
718
HIRÐSTJÓRA AÍSNÁLL.
og niðjar skyldu vora Jóni til aðstoðar, ef hann þeirra í
nauð-syn sinni leitaði. Kunni Jón að skikka sér vel fyrir tignum
mönnum, var bæði skynsamur og einarður, hverju sem beita
þurfti.
J>á Bucholt vissi fyrirætlan lögmanns, sendi hann forboð
í allar hafnir fyrir vestan og sunnan, að flytja Jón út af
landinu. í Vestmannaeyjar var forboðið ekki komið, en
kaup-farið þar búið til burtferðar. Ormur Vigfússon, bróðir Jóns
Vig-fússonar, nýgiptur’), bjó í Holti undir Eyjafjöllum, tók við Jóni,
vildi sem fljótast ferja hann út í eyjarnar, falaði skip sem næst
var fyrir hendi af séra Orrni Ofeigssyni, nýkomnum úr eyjunum
í land, því bráð nauðsyn kallaði nð. Barði Ormur á presti mjög,
því hann synjaði skipsins, tók það ekki að síður, svo Jón náði
fari á kaupskipinu, kom til Kaupenhafnar. Einn af sonum
Hinriks Rantzow (eg meina Gert Rantzow) var þar og í stórri
náð hjá kónginum ; honum tjáði Jón sitt erindi og bað um góð
ráð og aðstoð, og þó hann af teldi hann í fyrstu þeirri
fyrir-ætlan, samt sem bann sá, að ei tjáði að letja Jón, þá flutti
hann svo hans mál við kónginn, að sakir þær, sem Jón bar fram,
voru teknar undir rannsak, og þóttu ófagrar. En Bucholt dó
áður en ályktan gekk í málinu, svo af þessu hafði Jón lengi
nafn mikið, til þess því hnignaði, því synir hans Jón (Skon) og
Böðvar bryddu á krókum sínum í aldurdómi föður sins, af hvers
toga þeir spunnust eptir flestra meiningu.
Anno 1600 var Jóachim Solke2) umboðsmaður á
Bessa-stöðum (eg meina) höfuðsmannsins Bucholts, annars kallast hatin
kóngl. majestetar umboðsmaður í áreiðarbréfl um landamerki í
millum Eyðis og Reykjavíkur.
Jóhann Bucholt var hér höfuðsmaður i fyrra sinni 18 ár,
en í síðara 5 ár3), als 23 ár, og optast hér í landi.
PÉTUR TÓMASSON.
Anno 1587 var hann umboðsmaður á Bessastöðum, eptir
J) Nýgiptur slept í B.
") Hann mun liklega vera sami maðurinn sem Finnur biskup nefnir
Johannes Södeche (Hist Eccl. III 38).
3) Hér verður dauðaár hans, 1602, að vera reiknað með, en hann var
þó eiginlega búinn að missa hirðstjórnina árinu áður (sbr. Hist.
Eccl. III 38).
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>