- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
752

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

752

HIRÐSTJÓRA AÍSNÁLL.

mand over Island. Hann hélt landinu í gdðri stjórn og stilli,
var Ijúfur herra og lítillátur við alla, en alvarlegur, þá til þess
þurfti að taka við stórbokka og stolta. Tóku sig og engir upp
á móti honum. Hann hafði ama á stærilæti eður stórri
klæða-drakt, en vildi að fólk klæddist og lifði þarflega og slett, eptir
þessa fátæka lands fátæklegum hætti, hvers gagn og nytsemi
hann stundaði, og að afvenda frá því stórum sköttum og
þyngsl-um, sem hann kunni, hvar fyrir hann lét færa sér héðan söl,
fjallagrös, fjörugrös og fleira þesskonar, og sýndi við hversu
slettan kost fátækt fólk yrði að iif’a hér í landi, og kynni ekki
að þola skatta eður meiri þyngsli en það hefði. Kóngsins
be-falingum hélt hann fram og því, er hann hélt landinu
nytsam-legt. í collatione eður veitingu prestakalla lét bann attestatos
ganga fyrir, ef þeir voru til eður vildu gefa til þeirra, eptir
Kristjáns fjórða bréfi anno 1633. Hélzt hér og við kosning og
köllun prestanna eptir Kristjáns fjórða ordinanziu um hans daga.
Og þó atjjr nyti ekki hans gúnstar og góðvilja, svo sem hún
var í sjálfri sér, kom af því, að fólkið náði ekki tif hans, þar
hann kom hingað mjög sjaldan, eður ekki á hans seinustu árum,
en umboðsmenn hans og fógetar flultu á milli, svo sem þeir
voru lundaðir, en hann hlýddi þeim stundum nógu mikið. Hann
varð gamall maður, dó anno 1683 dagl6. martii, var hér
höfuðs-maður fi£5 ár, nafntogaður og tregaður af þessa lands
innbyggj-urum svo sem þeirra faðir og patron.

Hans fógetar hér í landi voru: I. Matthías Söffrinsson,
(bróðir Jens landfógeta) frá anno 1640 þar til hann dó á
Bessa-stöðum af steinsótt auno 1651 dag 10. dosembr., frómur,
mann-orðsgóður maður. Hans legsteinn er í Bessastaðakirkju kór.

II. Tómas Nikulásson varð eptir hann fógeti anno 1653,
sigldi þó béðan um haustið, en kom hingað aptur anno 1654,
með konu sína Margréti Kláusdóttur Brun, nafnkunnan
skap-varg. En anno 1656 sigldi hann upp á hans reikninga, og
setti á meðan hér sinn umboðsmann Hákon Ormsson, sýslumann
í líangárþingi; hann dó um veturinn á Bessastöðum dag
13-desembr.; þar fyrir fékk Árni Oddsson lögmaður Matthías
Guð-mundsson (sem verið hafði í höfuðsmannsins þénustu) og setti
til umboðsmanns þar á meðan, en groser Michelsson, fógetans
þénari, var settur til að vakta kóngsgarðinn og hvað honum til
heyrði.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0764.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free