- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
765

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

HIRÐSTJÓIÍA ANNÁLL. 765

af athugaleysi skrifuðu, að hún væri rétt útskript af
original-stefnunni. En þá Magnús átti að bevísa stefnulesturinn á
presta-stefnunni, var annar stefnuvotturinn í burtu, yfirtalaður eður
vélaður af forlagi prests, eins og hann mundi með vanæru og
spotti verða þar opínberlega feldur. Féll enn sökin um sinn,
hvað séra Jóni þótti ekki nóg og upp las þar spottlegt bréf,
sem í fijótu máli sýnist stílað upp á Magnús og stefnuvotta
hans, eins og þeir vitnuðu, að sá meinlausi fugl, krían, hefði
látið stefna sér, með einum og öðrum kýmilegum sneiðyrðum og
spottlegum tilfyndingum og óskikkanlega þar til heimfærðum
guðs furðuverkum, svo sem þá Balaams asna talaði, etc. Ef
ein-um sléttum sýslumanni, sem héti Magnús, þætti vera sneiðilegt,
væri hann kallaður Mangi, miklu fremur mætti velbyrðugum
amtmanninum þykja sér vera sneiðilegt, ef hann væri kallaður
krían Muller fyrir Kristján Muller, jafnvel þó séra Jón segist
ekki þurfa að þykkja stórum fyrir hans persónu, því hann viti
ekki hvað mikið hann muni þykkja fyrir sig, -etc. Síðan stakk
séra Jón þessu bréíi niður hjá sér, að hann meinti, en til allrar
óhepni glataði hann því, svo það komst strax í hendur %Jóni
Eyjólfssyni, og var upp á skrifað af prestunum, að séra Jón
hefði það fyrir réttinum upp lesið, Annað gjörðist þar ekki,
utan séra Jóni var stefnt upp á ný til annarar prestastefnu á
Miðgörðum að bálfs mánaðar fresti upp á þessa þýzku
suppli-catiu: á bana kom séra Jón ekki, gjörðist þar lítið, nema að
séra Jón og þetta mál var dæmt inn fyrir næstkomandi alþingis
synodum. Nú gramdist amtmanninum að sönnu, að málsóknin
tókst ei eptir hans vilja, en þó miklu meira kriubréfið, skrifaði
strax biskupinum mag. fórði og klagaði fyrirhonum fyrirhverju
forakti og spotti hann verði af séra Jóni, og vill hafa af
biskup-inum bráðar atgjörðir; hvað hann gjörði eptir hans vild.
Skrif-aði aptur hvað hann hafi ásett. Sendi biskupinn strax eptir
jól vestur, og lét sjálfur stefna bæði séra Jóni til prestastefnu
á Krossholti á þann 22. febr. anno 1693 til andsvara við
amt-manninn upp á þessi bréf; þar með stefndi hann þangað séra
Ásmundi prófasti og hans prestum, til að vitna um
upplestur-inn á kríubréfinu, en tilsetti séra Pál Gunnarsson, prófast í
Mýrasýslu, með prestinum úr pverárþingi, fyrir sunnan og vestan
Hvítá, að rannsaka og dæma hér um, svo amtmaður þyrfti enga
fyrirhöfn að hafa, utan að koma eður senda þangað sinn
fuil-mektugan. En á þá prestastefnu kom enginn af bans hálfu og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0777.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free