Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
54
SK.ÚLI LANDFÓGETI MAGNÚSSON. 4
daginn eptir, og var hann heitinn eptir langafa sínum Skúla presti
Magnússyni í Goðdölum (pr. að Goðdölum 1662—1711), er
andaðist 26. sama mánaðar, rúmlega níræður.
Skúli sjálfur lýsir þannig föður sínum, að hann hafi verið
gáfaður vel og fremur lærður, klerkur góður, lagafróður, töluvert
hagmæltur og búhöldur allmikill. Mun lýsing þessi fara nærri
sanni. Telur Skúli það sem dæmi um skáldskap hans, að hann
hafi snúið innihaldi Morsku laga í snotur ljóð og þýtt söngvana
úr hugvekjukveri nokkru, er hét »Den hedendc Kiœdei, og
algengt var á þeim tímum. Ekki var þó neitt af ritum hans
prentað. Um Einar afa sinn fer hann svofeldum orðum: »Hann
var einkar guðhræddur og hinn mesti siðprýðismaður og kostaði
kapps um að vera fyrirmynd annara bæði sem klerkur, búhöldur
og maður. Hann var lærður vel í Grísku og Latínu, las
pýð-versku til fullnustu og var kennimaður góður«. Hann samdi
töluvert af pródikunum til húslestra og þýddi prédikanir Lúthers
og Brockmanns. J>egar svo stóð á, að aðstoðarprestur hans
prédikaði í annexkirkjunni, embættaði hann sjálfur í Garðakirkju
allt til þess er hann var 93 ára. Á efstu árum sínum lá hann í
kör, en hélt þó ritstörfum sínum áfram. Með fyrri konu sinni
átti hann 12 börn, er öll dóu fyrir innan tvítugt, nema þeir Magnús,
faðir Skúla, og Jón, er síðar varð konrektor. pótti Jón íyrirtak
að gáfum og lærdómi, og var þekkingu hans í Áusturlandamálum
við brugðið, en til þeirrar þekkingar hafði faðir hans lagt
grund-völlinn. Jón var góðgerðasamur mjög og einkar vel látinn bæði
af prestum og alþýðu, því hann mátti sín mikils hjá biskupi og
mælti öllu bót. Hann dó ungur og þótti að honum mikill
mannskaði. — Um Oddnj5ju móður Skúla er það að segja, að
hún var mesti kvenskörungur og var við brugðið fyrir dugnað
og rausn.
Frá bernsku Skúla er fátt að segja. f>ó mun hann snemma
hafa verið einráður og allófyrirleitinn, og fylgdi það honum
lengst af. Meðal annars bar svo við einu sinni, að liann var að
leik með syskynum sínum í stofunni á Húsavík.1 Vildi hann
einn öllu ráða í leiknum og lék þau svo sárt, að faðir hans varð
að ganga á milli og stía honum frá hinum börnunum. |>ó
1 Magnús prestur flutti til Húsavíkur 1715.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>