- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Þriðja Bindi /
13

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

54 SK.ÚLI LANDFÓGETI MAGNÚSSON.

13

héruðum. Um sumarið reið Skúli til þings og hafði þá þegar
allmörg mál meðferðis. Árið eptir sagði Jón sýslumaður
for-steinsson, er settur hafði verið í vesturhluta Skaptafellsyslu, því
starfi af sér, og var Skúli skipaður til að veita henni forstöðu
Eigi lynti þeim saman Skúla og Jóni, og hefur þeim eflaust
borið eitthvað á milli viðvíkjandi afhending sýslunnar, því
sjálfsagt mun Skúli þar, eins og opt varð raun á síðar, hafa
gengið hart eptir að öllu væri vel og refjalaust af sér skilað.
Áttu þeir í einhverju málabraski saman, þótt eigi kæmi það
fyrir lögþing.1 Um þessar mundir druknaði Jens Spendrup,
sýslumaður i Skagafjarðarsýslu (sýslum. 1716—1735), í
Héraðs-vötnum. Hugði Skúli gott til að fá þá syslu, því bæði var það,
að hún var mun betri en sú, er hann sat í, og hitt annað, að
honum leiddist þar eystra. Lafrentz amtmaður (amtm. 1734—1744)
hafði til bráðabirgða skipað Odd landþingsskrifara Magnússon
til að gegna þar sýslumannsstörfum, en er Skúli kom á þing um
sumarið, krafðist hann þess af amtmanni, að hann skipaði sér
sýsluna og bar fyrir sig loforð stjórnarinnar. Ámtmaður brást
reiður við og kvaðst setja þann einan fyrir sýsluna, er sjálfum
honum hugnaðist og ekki skeyta því, er aðrir segðu. Biður
Skúli þá amtmann leyfis til utanfarar um haustið, en amtmaður
setti þar þvert nei við, nema með því einu skilyrði, að Skúli
skuldbindi sig til að sækja eigi um sýsluna. En eins og nærri
má geta, var þess litil von að Skúli játti því, þar sem förinni
einmitt var til þess heitið. Lafrentz var þá fyrir skömmuseztur
í embætti og hefur eflaust verið hugsvölun í að beita
embættis-valdi sínu, því svo er um marga, er komast til valda. En að
þetta var einber rangsleitni frá hendi amtmanns, liggur i augum
uppi, enda var hann tæplega riðinn af þingi áður hann sá sig
um hönd og gaf Skúla fararleyfi. En eigi var honum um að
láta hlut sinn fyrir Skúla og fór því sjálfur utan um haustið.
Hafði hann þegar frá byrjun ætlað Oddi Magnússyni sýsluna,
og þótti nú minni von til að Skúli fengi máli sínu framgengt,
ef hann, sjálfur amtmaðurinn, væri fyrir til andsvara, er hann
kæmi fram með umsókn sína. Fór Skúli utan með
Berufjarð-arskipi og hafði um veturinn aðsetur sitt hjá Lárusi kaupmanni
Pálssyni. Héldu íslenzkir kaupmenn samkomur sínar í húsi
haus, og varð þeim, sem líklegt má þykja, tiðrætt um íslenzka

’ Sjá Esp. Árb. IX, bls. 126.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:32 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/3/0023.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free