Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
54 SK.ÚLI LANDFÓGETI MAGNÚSSON. 20
Nú er alit kyrrt til 1748. |>á fær Skúli öldungis óvænt
bréf frá Bjarna sýslumanni Halldórssyni, er biskupi nú bafði
tekizt að hræra í. Skorar Bjarni á hann að gera grein fyrir
400 ’5’ af járni, er bann hefði látið af hendi uppí nokkuð af
innstæðufé því, er fylgja átti stólnum sem endurgjald fyrir dauð
kúgildi, en innstæðuféð allt átti að nema 772 dölum. Af
þess-um 772 dölum kveðst biskup hafa fengið 110 dali i peningum
og 120 rikisdala virði í ómyntuðu silfri. En uppí þá 542 dali,
er eptir standi, kveðst hann hafa fengið 400 1T af ónýtu járni,
gamlar húðarbykkjur og timbur, er eigi sé hæft til
skólabygg-ingar, sem það þó hafi verið ætlað til. Fær Skúli nú enn fremur
bréf frá stjórninni, er býður honum að gera tafarlaust grein fyrir
hvernig á þessu standi. Skúli svarar þegar um hæl aptur.
Skýrir hann frá því í bréfi sínu, að innstæðuupphæðin sé þannig
til komin, að á dögum Bjarnar biskups J>orleifssonar (1692—1710)
hafi gengið ótíð mikil á árunum 1698—1711 og hrunið niður
kúgildi heimastaðarins og aldrei síðan verið endurnýjuð. f>egar
Steinn biskup tók við staðnum, var honum goldið andvirði
kú-gildanna í löndum og lausum aurum af dánarbúi Bjarnar biskups.
Sjálfur kveðst Skúli eigi hafa tekið við meiru en 10 dölum í
peningum af andvirðinu og beri sér því að réttu lagi heldur eigi
að greiða meira. Jarðagózinu, sem upp í hitt hafi komið, kveðst
hann vel geta komið í peninga og fengið biskupi í hendur, ef
hann endilega vilji. Að því er bykkjurnar snertir og ruslið,
kveðst hann skila því einu, er sér hati verið í hendur feingið og
eigi öðru. Um járnið játar Skúli, að það, er hann fékk til
stað-arins frá verzluninni á Hofsós, hafi við nánari eptirgrenzlan
reynst bráðónýtt; þó megi biskup eigi gefa honum sök á þessu,
því hann hafi margboðizt til að reka það ofan i kaupmann
aptur, en bisktip jafnan svarað, að eigi væri vert að gera orð á
öðru eins smáræði. Kveðst Skúli enn einu sinni nokkru síðar
hafa vakið máls á þessu við biskup, og boðið honum að gjalda
andvirði járnsins í peningnm, ef hann þættist vanhaldinn, en
biskup hafi enn sem fyr lekið því fjærri. Að lokum lætur Skúli
þess getið um timbrið, það er biskup kvað til einskis nýtt, að
það sé að dómi flestra manna einmitt einlur vel fallið til
skólabyggingar. Færði Skúli hér svo góðar og órækar sönnur á
mál sitt, að stjórninni þótti fullnægjandi og féll málið hér niður
um hríð.
£>að leið eigi á löngu áður málinu var hreyft enn á ný.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>