- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
1

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

SKÝRSLUR UM SKAPTÁRGOSIN 1783.

1. Fullkomið skrif nm Síðueld

eftir

Jón Steingrímsson

prófast.1)

Góðfúsum lesara óskast náö og friður. Meöal
höfuð-skepnanna er eldurinn sá allra nytsamlegasti, því án hans
kunna þær ei nje nokkur hlutur af þeim samsettur að
viö-haldast. En þar aptur á móti verður hann sá allra
skaðsam-legasti, þá illa er með hann höndlaö eða þá sjálfur
náttúr-unnar herra lætur sjer þóknast að hleypa honum lausum, til
aö straffa vondar athafnir mannanna. Þetta eldsins skaðræði
er svo kunnugt í náttúrunni,-að menn, dýr og skriðkvikindi
flýja og forða sjer gjarna fyrir hans bruna, og að sú skyn-

’) Af ritgjörö þessari eru til margar afskriftir i ýmsum söfnum. Hér
er eingöngu f’arið eptir frumritinu, eiginhandarriti sira Jóns
fciteingrímssonar á Prestsbakka, sem geymt er í bókhlöðu lærða
skólans í Reykjavík. A frumritinu er engin fyrirsögn, en ýms
önnur handrit kalla ritgjörðina »Fullkomið skrif um Síðu-eld« og
höfum vér haldið því nafni hér. Eldgosin á Síðumannaafrétti
1783 eru einn hinna jpýðingarmestu viðburða í sögu Islands á
seinni öldum, afleiðingar þeirra urðu miklar fyrir land og lýð. Af
gosunum leiddi fyrst og fremst ógurleg hallæri, skepnufellir og
manndauði og þaö varð aptur tilefni til mikilla breytinga á
land-.stjórn, verzlun og öðru, voru sumar Jpær breytingar óneitanlega til
mikilla bóta, en afleiðingar sumra breytinganna liafa gjört skaða
fram á vora daga og líklega miklu lengur. Kaflar úr ritgjörð
Jóns Steingrímssonar og ágrip eru víða til í handritum og eitt
ágripið er prentað í Ritum um jarðelda á íslandi, er Markús
Loptsson safnaði (Rvik 1880) bls. 41—83, en þar er mörgu
merki-legu slept.. fað er því nauðsynlegt fyrir sögu landsins að prentað
sé aðalritið um þessi miklu eldsumbrot, og er undarlegt, að það
.skuli ekki hafa verið prentað fyrr. Þ. Th.

1

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0013.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free