- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
44

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

44

SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.

komið og aðkomandi nokkrir skýrir og sannorðir menn sáu,
og eitt sinn síðar sáust þau; en þá vötnin köstuðu sjer þaðan
í burtu, hefur ei við þau orðið vart. Fljótshverfið, þá góðu
sveit, sem þá var í eyði, var sorglegt að sjá. Refar höfðu
þá aðsetur þarí eyðibæjum, því bæli þeirra, vistir og frágang
sá bæði jeg og aðrir í Kálfafells skála og bæjardyrum. Ein
tóan lagði hvelpum sínum í Núpstaða heyhlöðu og var þar
drepin með yrlingum sínum af ferðainönnum hjeðan úr
Meðal-landi. 25. júli kom Hverfisfljót hið fyrsta fram með sömu
stærð og fyr, austanvert við hraunið, og fjell framan í austari
krikann ofanvert við það, sem eptirvarð af Seljalandsaurum, og
fellur þar í Brunná.

Þetta sumar var nærfellt sama ástand og fátækt meðal
þeirra fáu bænda, sem hjer voru; áttu þá að vera uppgengnir
allir þeir peningar, sem hingað voru gefnir. Tilskikkar þá
stiptamtmaður að drífa hingað alla aumingja þá, sem tórandi
voru hjer í þrem sýslum fyrir vestan, sem engan áttu þar
að, hvað og svo vægðarlaust var framkvæmt. Þessi flokkur
varð hjer um bil 40 manns. Hjer voru þá engin önnur úrræði,
en setja þá niður til dráps, því þeir fyrir voru gátu ei vegna
matareklu tekið á móti þeim. 16. október, sem var
sunnu-dagur, beiddum vjer guð opinberlega að veita oss nú og
þessum vesalingum einhverja líkn. Tókum svo það ráð saman,
að fara austur á Hverfisfjörur, ef ske kynni að guð leggði
oss til sel eður annað til lífs; komum svo þangað fjórir þann
21. Var þar þá fyrir einn maður, bóndi frá Skaptafelli, er
Eiríkur hjet, er á Núpstaðarfjöru (þó í aðgætsluleysi af
fjöru-mörkum), hafði slegið með tveim drengjum á þeim degi 70
brimla eður stórseli og 120 kópa, sem var eitt það mesta
drottins náðarverk, að hann ljet þessar skepnur gefast svo
einum manni í hendur, og honum krapta til svoddan þrekvirkis.
sem varla mun finnast dæmi til. Þurftum við ei annað fyrir
að hafa, en að taka hjer upp á hestana þurran hlut á landi,
sem varð nærfellt upp á 150 hesta fyrir utan sláttuhlutan,
sem þó var ríflegur. Embættaði jeg þá á Kálfafelli í bezta
blíðskaparveðri, er oss þennan tíma veittist, og þökkuðum
allir glaðværir guði sína náð, er oss svo ríkulega forsorgun
veitti á þeirri eyðimörk, sem ánægjanlega burttók alla
hung-ursneyð og dauða, er annars við borð lá. Og þar eptir hefur
hann sýnt oss hvert miskunarverkið eptir annað að Iifga og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0056.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free