- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
46

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

46

SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.

fyrir þeirra ádrykkjum, að sá óvandi viðhjelzt. Betur hann
kæmist hjer aldrei framar á með sama hætti og var. Þé.
afkomst aptur sá nýákomni báts- eða flutningstollur yfir
Skaptá, er hjer hafði aldrei fyr verið, ásamt það argafas, er
þrálega varð á helgum dögum millum kirkjufólks út af
flutn-ingi yfir hana; en fyrir áarinnar forstíflan er bezta og
hagkvæm-asta færi komið að fara yfir hana á hestum, svo vel fyrir
kirkjusöfnuðinn sem hverja aðra, er yflr hana fara. Allur
sá órói og sundurlyndi, sem hjer gekk út af Seljalandsaurunum
og ótal fleiru, aftókst og upphafðist æflnlega hjeðan í frá.

Þessi eld- og landplága ónýtti þá nýju jarðabók, sem
hjer yfir átti að ganga og viðar útbreiðast, upp á hverja
erviðað var í 14 ár, og eptir því, sem hjer varð opinbert af
hennar fyrsta forslagi 1769 um forhækkun jarðalandskulda
hjer á klausturgózinu, sem voru upptrektar til hæstu forngildu
og nokkurstaðar yfir hana, sem leit út til þess að verða að
æ varandi landplágu og útörmun á landsetunum, ef viðgengt
hefði orðið. Fyrst reið hjer um landfógetinn herra Skúli
Magnússon til þess erindis, og þá hans gjörð fannst óþolanleg
almúganum, flúði hann sem einn maður með þau vandræði
til þáverandi amtmanns hjer yfir herra Ólafs Stephánssonar,
sem fjekk hans konglegrar Mayts náðarbrjef þar upp á, að
lögmaður herra Björn Markússon skyldi hingað upp á
almúg-ans kostnað reisa, að yflrskoða jarðirnar aptur og upp á þær
setja landskuld þá, er hann eptir þeirra ásigkomulagi fynndi
billega. Með honum kom og fóveti Skúli Magnússon aptur;
en þá þeir gátu ei orðið samþykkir þar um, voru 2
aðgjörð-armenn hingað aptur sendir, nefnilega herra vicelögmaður
Magnús Ólafsson og sýslumaður Sr. Jón Jónsson að yfirskoða
hjer enn á ný, hvað þeir fynndi billegast; því hjer fundust
þá ei vitrari menn nálægt í landinu til þess verks. Nú þó
menn þenktu og vonuðu, að þeir hefðu gengið sem næst lögum
og góðri reglu, þá barst þó til vor, að framandi herrar hefðu
ei verið vel ánægðir með öll verk þeirra, og að þeir hefðu
þar eptir mátt gjöra nýjar útleggingar og forsvar yfir gjörðir
sínar, kom svo þar ofan á skikkun til sýslumanns, sem hjelt
Þykkvabæjarklaustur, og klausturhaldara þess, sem hjelt
Kirkju-bæjarklaustur, að hvor skyldi það og það af landi, fjörumr
eignum og ítökum annars dæma, þó meðfylgt hefði í
ósundur-slitinni hefð yflr 100 ár, eða hvað lengi. En einmitt í þvír

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0058.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free