Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN.
47
að það verk átti að byrjast, gaus eldurinn yfir og hindraði
það Oróaefni. Enn f’ramar rjett á þeim sama degi og
forn-gilda fororðningin var staðfest og undirskrifuð þar i
Kaupenhavn, að það skyldi hjer þaðan í frá gilda, byrjaðist
hjer í landi jarðskjálftar þeir og eldgangur, sem henni og
jarðabókinni (hvernig sem hún var um steypt og tiibúin)
umbiltu til eilífrar tiðar, bæði á þeim 14 jörðum sem
af-tókust, og enn fleirum.
Hvílík umbreyting hjer varð í náttúrlegum hlutum til enn
betra góðs, sjest enn minnst af, þó sjest guðs rjettvísi 1 því,
að hann eyðilagði að mestu leyti það grasgefna og kjarnbezta
land, afrjettinn, sem hjer fylgdi, sem það árlega uppstígandi
dramblæti mannanna foragtaði, sem einkisverðan hlut, eða
þarflausan fyrir sinn kvikfjenað, eins og áður fyrri hafði gjört
verið. Sömuleiðis þar sem heyrðist innbyrðis hatur væri og
þess háttar eldkveikja á millum nábúa og nágranna, þar varð
skaðræði af eldinum, eitt það inesta til að drífa menn þaðan
og hvern frá öðrum þó með allra stærstu vægð og líkn. Hjer
gjörði og náttúrunnar herra öllum kunnugt, sem það nota
vilja, að hjer er að fá mótak til eldiviðar, sem alla stórlega
þrengir til að fá, er sjer kunna að nota hann, nefnilega þá
eldurinn þrengdi sjer frarn eptir Skaptárfarveg hjer fyrir ofan
klaustrið, rótaði hann svo upp bakkanum sunnan megin í
Hólmslandi, að þar kom í Ijós ein sú bezta eldiviðarmótekja,
sem enginn vissi þar nje hjer af áður. Allar mýs, sem hjer
voru i þessu þinglagi, og eins því vestra, er optlega gjörðu
stóran skaða í voru melkorni og öðru fleiru, drápust allar,
að hjer verður ei síðan vart við þær. Hjer 1 austari
sýslu-partinum hefur um langa æfi ei mús sjezt nje fundizt, og
hafa þær til að geta þar eins drepizt, þó menn hafi þar ei
sögur um.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>