- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
48

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

48

SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.

Taða yfir fólk það sem hér var í Kleifaþinglagi,

þá eldurinn hér fram kom 8. júni 1783 og svo hvað
margir af því dóu hér og annarstaðar af hans verkunum
ásamt hungursneyð og dýrtíð árin 1784 og 1785, samantekið
í eitt sem eptir fylgir.

(Hér þykir ekki eiga við að prenta skýrsluna í heilu lagi,
þar er hvert mannsbarn talið með nafni, eg hefi þvi dregið
hana saman í töluskrá þá sem hér fylgir. Hún sýnir nægilega,
hve ógurlegar hörmungar þá hafa gengið yfir sveitir þessar.
Á þrem árum 1783—1785 deyja 37°/o af öllu fólki í þessum
sóknum1), meira en þriðji hver maður, og er það efasamt
hvort mannfellirinn hefir verið mikið meiri í Svartadauða.
Sumir bæir aleyðast nærri, sumstaðar lifir eitt eða tvö
ung-börn, á stöku bæ hefir fólkið þó komist betur af.
Niður-setningar og umrenningar stráfalla, af 19 niðursetningum og
umferðafólki í Kirkjubæjarklausturssókn lifa aðeins tvær
kerlingar. Nafnaskráin yfir fólkið i sóknum þessum hefir ef
til vill dálitla þýðingu fyrir ættfræðinga, en varla fyrir aðra.
Af sjaldgæfum nöfnum, sem þar koma fyrir, eru þessi helzt.
Af karlmannsnöfnum Arnoddur, Auðólfur, Andrés Nereiðarson,
Gunnsteinn, Hávarður, Hreiðarr, ísleikur, Michael, Natanael,
Ófeigur, Órækja, Salomon, Snjólfur, Skæringur, Valdi,
Örn-ólfur. Af kvennmannsnöfnum: Aldís, Gecilía, Dómhildur,
Emerentiana, Fides, Geirlaug, Guðleif, Gunnvör, Hallný,
Hug-borg, Kolfinna, Rachel, Snjófriður, Steinvör, Úlfhildur, Æsa.
Sum af þessum nöfnum koma opt fyrir).

1 fegar hin skæöa kólerusótt gekk í Kaupmannaliöfu 1853 dóu aðeins
31/2 °/o af íbúunum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0060.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free