Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN.
53
inu 1660; byggður síðar einn nýr bær með sama nafni
uppi á brúninni.
9. Hjörleifshöfði, sem stóð vestan og neðan undir höfðanum,
þar af tókust öll hús, tún, engjar og hagar, sem neðan
undir höfðanum voru í kringum hann, item 6 kýr í
fjósinu, þetta skeði í hlaupinu 1721. Síðar var lítill kotbær
byggður uppi i höfðanum, sem ber sama nafn.
1 Leiðvallarþinglagi:
í Pykkvabæjarklausturssókn:
í Álptaveri og kringam það á svo kölluðum Mýrdalssandi
var víst byggð, sem Landnáma sýnir. Seinni skrif og frásagnir
nefna þar þessa bæi, sem aftókust 894 fyrir ofan Álptaverið
nefnilega:
10. Dynskógar, fjörunafnið er eptir. 11. Hranastaðir.
12. Keldur eða Loðinsvikur. 13. Laufskálir. 14. og Hofstaðir,
úr hverjum bæ sagt er Herjólfsstaðir sjeu byggðir. Bygginga
eptirleifar hafa einasta sjezt af þessum bæjum, og í einum
stað stór eirketill fundizt af Þorsteini Magnússyni
klaustur-haldara. En fyrir vestan Álptaverið af tókust þessir bæir
1311 eða þar um bil: 15. Lambey, mikið stór bær. 16.
Lágey. 17. Holt. 18. Rauðalækur, aðrir segja Dyralækir. Hér
um gefur upplýsing einn Höfðabrekkukirkju máldagi og ein
fjara, sem liggur undir Kerlingardal. 19. Hraungerði með
öllum heimaslægjum og högum í hlaupinu 1625; bærinn
var síðar fluttur heim undir klaustrið, hvar hann nú
stendur.
20. Efri-Mýrar hafa aftekið fyrir öskufall og mannfæð einhverja
eptir 1580, þá var sú jörð byggð, en byggist ei framar.
í Búlandskirkjusókn eða norðast í Skaptártúngu:
21. 1112 eða þar um bil eyðilagðist heil byggð með 12 bæjum
af of miklu öskufalli, svo aldrei kunnu aptur að byggjast,
þá er hálfbevísanlegt, að hjer hafi eldur framkomið og
hraunspýju eptir sig látið. í*ar þessi byggð var, sjást
enn til merkis húsatóptir og girðingar, sjerdeilis á
kirkju-sta&num, sem þar skyldi verið hafa, og nafnið helzt við
plássins, að það kallast Tólfahringur.
33. Þorleifsstaðir, ein hjáleiga frá Búlandi, af öskufalli 1755.
34. Litlanes, Búlandshjáleiga, af jarðeldinum 1783.
35. Hvammur, kóngsjörð, af sama jarðeldi 1783.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>