Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN.
55
Hæl vil jeg ekkert segja, því eigi hefi sjeð þar neitt
skrif um.
56. og 57. Leiðólfsfell og Helgastaðir. Pessara bæja tóptir
sjást hjér uppi í byggðarfjöllum. Landnáma getur og
um þá, og segir í því plázi hafi verið ákomin byggð
mikil; því kallast áin, sem þaðan rennur, Fjarðará. En
af öskuföllum, sem komið hafa yfir það pláz og
upp-blæstri, byggist það hjerað eða fjörður aldrei framar.
í Kirkjubæjarsókn:
58. Gamla Hraun í Landbroti aldeilis eyðilagt af vatns
yfir-gangi úr Skaptá og uppblæstri af vindi og sandi ásamt
annara jarða engi og mótök um það eyðipláz, sem öðrum
jörðum fylgði.
59. Laxárnes, af vatni og uppblæstri.
60. Ytri Kirkjubær, af Skaptár landbrotúm.
61. Þverárdalur, af snjóflóðum og nú fyrir fullt og allt af
eldhrauni. í því víðlenda plázi fram að Hörgslandi, sem
nú kallast Skjaldbreið, var byggð til forna, sem öll hefur
eyðst af vatns- og sandyfirgangi eður hlaupum, en þar
ágreinir, í hverjum helzt hlaupum það hefur vorðið, vil
jeg ekkert víst segja um það. Er sagt þar hafi 8 bæir
verið, hafi ei annað land verið hjá þeim, en slægjur einar,
en hagbeitin hafi verið fyrir vestan Bjarnagarð, er liggur
eptir allri Landbrotsbyggð, frá Asgarðshálsi suður fyrir
í>ykkvabæ. Til sannindamerkis sjest nú hlaðin tröð á
báðar síður eður ein bein gata, milli Landbrots
byggðar-innar vestur fyrir greindan Bjarnagarð, og austur i
Saur-bæjarháls við Skaptá, um hverja Skjaldbreiðarbændur
skyldu reka allan kvikfjenað sinn, að hann gjörði ei skaða
þeim, er þar á báðar siður bjuggu; við þennan háls
hefur bær verið, sem enn þá sjest merki til, sem Skaptá
hefur aftekið,
6’2. er kallast hefur Saurbær, og sagt er hafi verið
Kirkju-staður Skjaldbreiðarmanna.
Bæjanöfn þar hef jeg ei sjeð nema þessi:
63. Vatnsendi, eptir sögunni af Gunnari Keldugnúpsfífli:
64. Dálkur, eptir Wilkins máldaga, því þá jörð er hjer hvergi
annarstaðar að finna. Þar er og getið um Erfstaði,
Aurland og Aurdal, sem getur verið Befstaðir, Hörgsland
og Hörgsdalur, af stafvillu, og því útfæri jeg þær ekki.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>