- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
56

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

56

SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN. 56

65. Efri Dalbær i Landbroti, af eldhrauni nú 1783.

66. Uppsalir í Landbroti, af sandi og uppblæstri 1784.

í Kálfafellssókn:
67 og 68. Ytri Dalur og Austari Dalur, í þessari
eldseyðilegg-ingu 1783.

69. Lundur, í fyrri jökulhlaupum, sem var kirkjustaður.

70. Djúpárbakki. Eptir báðar þessar jarðir sjást merki.

71. Skógar Hraun, bær þar fyrir austan, ef þessar tvær jarðir
berast saman við máldagann, þá falla niður deilur um
fjörurnar.

72. Foss, byggt býli þar uppi í heiðinni hjá fossi einum, er
nú ekki sjást merki til.

73. Ós í Meðallandi, sem allareiðu er komin í eyði af sandfoki
og blæstri.

Nú eru sýndar þær jarðir, sem aldeilis eru foreyddar og
aldrei byggjast, og þó segjast kunni, að nökkrar af þeim hafi
verið færðar, þá hefur það ætíð orðið öðrum að þrengslum.
Eru þó enn fleiri ótaldar, sem færðar hafa verið, svo sem
Hraun i Meðallandi, Nýibær í Landbroti, Hunkubakkar á Siðu,.
er jeg læt ei vera í hinna tölu, þar aðrar jarðir hafa ei liðið
við þeirra húsafærslu nokkurn skaða, heldur þeim sjálfum til
hagnaðar. Hversu enn fleiri jarðir hafi af sjer gengið
stórkost-lega og komist aldrei í sitt fyrra stand, vil jeg fáeinar til
skoðunar framsetja: Kálfafell á Síðu hafði svo miklar slægjur,
að þar fóðruðust 18 kýr, 6 geldneyti, hestar og lömb þar að
auki, svo sem að stærð á fjósi og nautahúsi þar enn sýna.
En nú kunna þar ómögulega að forsorgast í heyi nema 6 kýr
og litið meira. Þá Eiríkur Gíslason bjó á Flögu 1740 og þar
eptir, voru þar 19 kýr í fjósi, því þá gaf jörð sú af sjer 12
faðma af töðu og 12 faðma af bezta stargresi. En nú for~
sorgast þar ei meira á heyi en 4 kúa þúngi. Aður fyrr voru
4 bændur á Svinadal, svo sú eina jörð galt eptir allar
Flögu-jaröir 28 rd; en nú er þar litilfjörlegt einbýli. Fyrir árið 1634
þá Klifandi hljóp úr jöklinum, hafði Fell i Mýrdal slægjur i
suður og útsuður frá bænum uppá 200 hesta eða 12 faðma,.
sem þá tók af allt til eilifrar tiðar. far áður var 50
sauða-beit, var siðan 1762 metið af sýslumanni 12 sauða-beit og
svo i fleiru. Og þó var sú jörð einn tíma metin til gjalds,
sem að óspjölluð væri; svo brúkuðust þá lög og rjettvísi,.
áður en þessi síðasta landplága á datt. Hjer finnast margar

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0068.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free