- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
58

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

58

SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.

2. Einföld og sönn frásaga nm jarðeldshlanpið í
Skaftafells-sýslu árið 1783.1)

Eptir Jón prófast Steingrímsson og Sigurö Olafsson klausturhaldara.

Þessa árs vortími var sérdeilis spakveðrasamur með so
góðri blómgan á jörð og kvikfénaði að hér hafði ei því lík
árgæska um vortima komið í næst afliðin 12 ár. Sáu menn
opt um sagðan tíma bláan reyk yfir jörðunni, kom mörgum
í hug einsog síðar fram kom. að hann mundi af jarð- eður
jöklaeldi vera. Þegar vel leið á vorið bárust oss fregnir af
millireisendum frá Suðurnesjum, að ei einasta væri jarðeldur
uppi í Helguskeri fvrir framan Reykjanes, heldur hefðu
skip-verjar, sem komu utanlands frá til Hafnarfjarðar, séð eldsloga
hér i fjöllum eður jöklum fyrir ofan oss einhversstaðar.

Þann lta Junii kom fyrst upphaf vorra hörmunga, að þá
fundust sterkir jarðskjálftar, ekki einasta hér á Síðu,
Land-broti, Meðallandi og Álptaveri heldur og vestur í Mýrdal og
austur í Oræfum sem ætíð jukust, þó mesti gengi á kvöld og
morgna alla þá viku. 8. Júni var heiðríkt veður um
morgun-inn, en um dagmálabil dró upp svartan mokk af norðri, sem
færðist yfir Síðuna, svo þykkvan að dymmt varð í húsum,
úr honum féll aska að sporrækt varð á jörðu, var þessi aska
eins og optar þar eptir að sjá sem útbrunnin steinkol og þar
með í bland grá og íglyttu hár, sem auðveldlega mátti mylja
milli fingra. Þessum mokk létti þó mikið vel frá aptur um
daginn af hafkalda, sem hélt honum tilbaka, er hélst við fram
undir kvöld. 9da var sama veður með hafkalda, sást nú
algjörlega sá svarti sandmokkur hér á fjallabaki. lOda kom
ofan á þessa ösku stórdropótt vatnshríð úr mokknum, sem
upp sté nú hærra og hærra dag eptir dag, þetta vatn var
fullt af áður umgetnum öskusandi og hárum, Ijósblátt á lit
með lykt og smekk, sem samanblandan væri af saltpétri og
brennisteini, gjörði bitran sviða í augum, svima i höfði og
særindi á holdi nær þar á féll. Enn þá viðhéldust
jarðskjálftarn-ir. Þann llta gjörði mikið austanfjúk, sem hér tók af aptur

1 Prentað eptir frumriti i handritasafni Jóns Sigurðssonar nr.
4224°.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0070.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free